|
Međ lagabreytingum, sem nýlega voru samţykktar á Alţingi og gildi taka 1. nóvember 2009, verđur öllum afborgunum á verđtryggđum lánum einstaklinga, sem tryggđ eru međ veđi í fasteignum hér á landi, nú greiđslujafnađ ţannig ađ greiđslubyrđi tengist hér eftir greiđslujöfnunarvísitölu í stađ upphaflegrar vísitölu láns. Um leiđ stofnast greiđslujöfnunarreikningur sem tengist hverju láni en á hann fćrist sá mismunur sem er á hverjum gjalddaga milli afborgunar samkvćmt upphaflegum skilmálum og afborgunar samkvćmt greiđslujöfnun, inn eđa út af reikningnum. Í lok lánstíma skal lántaki greiđa af ţví sem eftir stendur á greiđslujöfnunarreikningi, ef eitthvađ er, međ greiđslum sem jafnar eru síđustu afborgun af láni á umsömdum lánstíma, en ţó ađeins í ţrjú ár. Ţađ sem enn stendur eftir á greiđslujöfnunarreikningi ađ loknum framangreindum ţremur viđbótargreiđsluárum skal afskrifađ, ţ.e. gefiđ lántaka eftir og afmáđ úr veđbókum.
Sjóđfélagalán LSR og LH LSR lán, falla undir framangreinda lagabreytingu og munu ţví taka ţessum breytingum frá og međ desember gjalddaga 2009 svo fremi ađ lán sé í skilum og ekki í “frystingu”. Fram til 20. nóvember 2009 geta lántakar hjá sjóđunum hafnađ framangreindri breytingu. Eftir ţann dag er lántakendum áfram heimilt ađ óska eftir ađ lán ţeirra verđi tekiđ úr greiđslujöfnun en ţá ţarf ađ gera upp ţá fjárhćđ sem safnast hefur upp á greiđslujöfnunarreikning og er hún ţá lögđ viđ höfuđstól láns og greiđist á umsömdum lánstíma.
Viđ greiđslujöfnun mega lántakar vćnta ađ greiđslubyrđi lána lćkki nokkuđ. Afborganir taka ţá miđ af greiđslumarki og breytingum sem ţađ tekur miđađ viđ greiđslujöfnunarvísitölu. Greiđslumark lána sem tekin voru fyrir 1. janúar 2008 er fjárhćđ afborgunar 1. janúar 2008 ásamt gildandi vöxtum á verđlagi ţess dags. Greiđslumark yngri lána tekur miđ af lántökudegi.
Um hver greiđslujöfnunarvísitala er segir svo í 6. gr. laga um greiđslujöfnun fasteignaveđlána einstaklinga: “Skal hún vera samsett af launavísitölu, sbr. lög um launavísitölu, sem vegin er međ atvinnustigi. Viđ útreikning greiđslujöfnunarvísitölu skal launavísitala sú sem Hagstofan birtir í mánuđi hverjum vegin međ atvinnustigi sama mánađar og skal hún gilda viđ útreikning greiđslumarks lána. Međ atvinnustigi í mánuđi er átt viđ hlutfall sem miđast viđ 100% ađ frádregnu atvinnuleysi í hlutfalli af vinnuafli í viđkomandi mánuđi samkvćmt uppgjöri Vinnumálastofnunar.”
Stefnt er ţví ađ senda öllum lántökum LSR lána nánari upplýsingar í pósti fyrir 20. nóvember nk.
Eyđublađ fyrir afţökkun greiđslujöfnunar
Nánari upplýsingar er hćgt ađ fá á eftirfarandi vefsíđum:
Island.is
Félags- og tryggingamálaráđuneytiđ
Umrćđa og lög frá Alţingi
|