Réttindi í öðrum sjóðum
Hvað þá?
Hafir þú greitt í fleiri en einn lífeyrissjóð um starfsævina þarftu ekki að óttast að þau séu gleymd og glötuð. Lífeyrissjóðir hafa gert með sér samkomulag um samskipti og halda nafnaskrá yfir þá lífeyrissjóði sem þú hefur greitt í. Ekki er hægt að sameina réttindi eða flytja þau milli sjóða.
Nafnaskrá lífeyrissjóða og samkomulag um samskipti lífeyrissjóða
Til að koma í veg fyrir að lífeyrisréttindi glatist, er annars vegar haldin svokölluð nafnaskrá lífeyrissjóða og hins vegar er í gildi samkomulag um samskipti lífeyrissjóða. Þess ber að geta að B-deild og LH eru ekki aðilar að þessu samkomulagi.
Nafnaskrá lífeyrissjóða
Lífeyrissjóðir senda þær kennitölur sem greitt hafa til þeirra inn í nafnaskrána. Greiðslustofa lífeyrissjóða heldur utan um skrána en allir lífeyrissjóðir eiga að hafa aðgang að henni og geta séð í hvaða aðra sjóði sjóðfélagar þeirra hafa greitt.
Í skránni eru einungis upplýsingar um það til hvaða sjóða hefur verið greitt en engar frekari upplýsingar s.s. um greiðslu iðgjalda eða réttindi. Hafa þarf samband við viðkomandi sjóð til að fá þær upplýsingar.
Samkomulag um samskipti lífeyrissjóða
Flestir lífeyrissjóðir landsins eru aðilar að samkomulagi um samskipti lífeyrissjóða. Því er að jafnaði nægjanlegt fyrir sjóðfélaga að sækja um lífeyri hjá einum sjóði (yfirleitt þeim sjóði sem síðast var greitt til). Sá sjóður hefur aðgang að nafnaskránni og sendir umsóknina áfram til annarra sjóða sé þess óskað.
Þá starfar sérstök úrskurðar- og umsagnarnefnd sem er ætlað að fjalla um álitamál sem upp kunna að koma við framkvæmd á samkomulagi um samskipti lífeyrissjóða.
Samkomulagið tekur til eftirfarandi þátta:
-
Réttindi í fleirum en einum sjóði
-
Skipting framreiknings milli sjóða
-
Reglur um barnalífeyri milli sjóða
-
Upplýsingagjöf milli sjóða
-
Réttindaflutningar milli sjóða
-
Umsókn um lífeyri vegna réttinda í mörgum sjóðum
