Einstaklingsaðild

Aðild í kjölfar niðurlagningar á starfi

Hafi starf þitt verið lagt niður átt þú rétt til áframhaldandi aðildar að sjóðnum sbr. 2. mgr. 30. gr. laga nr. 1/1997 og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 2/1997

Umsókn

Óskir þú eftir áframhaldandi aðild þarftu að sækja um það hjá sjóðnum. Með umsókn þurfa að fylgja eftirfarandi gögn:

  • Staðfesting launagreiðanda á því að viðkomandi starf hafi verið lagt niður og frá hvaða tíma.
  • Staðfesting á dagvinnulaunum sem síðast var greitt af til sjóðsins, þ.e. kjarasamningi, launaflokki og þrepi eða sambærilegri kjaraákvörðun.
  • Ef greidd eru biðlaun þarf að upplýsa hvenær greiðslum lýkur.

Hafir þú fengið samþykkta einstaklingsaðild, berð þú sjálfur ábyrgð á iðgjaldagreiðslum til sjóðsins.

Iðgjaldastofn

Greiða skal 12% iðgjald af dagvinnulaunum fyrir hið niðurlagða starf, persónuuppbót, orlofi og vaktaálagi ef það á við. Eftir það taka launin sömu meðalbreytingum og verða á föstum launum opinberra starfsmanna fyrir dagvinnu. Hér má fylgjast með þeim breytingum sem verða mánaðarlega á meðaltalsvísitölunni.

Til að finna viðmiðunarlaun er margfaldað með vísitölu eins og hún er hverju sinni og deilt með vísitölu þess mánaðar þegar starf var lagt niður.

Dæmi: Starf er lagt niður í des 2006, laun voru 250.000 kr. og vísitalan 252,8 stig. Í janúar 2011 er vísitalan 314,6. Viðmiðunarlaun í þeim mánuði eru því 250.000 *314,6 / 252,8 = kr. 311.116.

Eindagi iðgjalda er 14 dögum eftir útborgun launa hvort sem um fyrirfram- eða eftirágreidd laun er að ræða. 

Breytingar á starfshögum

Hefjir þú störf hjá vinnuveitanda sem hefur aðild að sjóðnum fellur einstaklingsaðild niður. Látir þú af hinu nýja starfi innan tveggja ára tekur einstaklingsaðildin gildi að nýju.

Flýtileiðir




Language


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica