Erlendir ríkisborgarar

Endurgreiðsla iðgjalda til erlendra ríkisborgara

Erlendir ríkisborgarar sem flytjast af landi brott eiga þess kost að fá endurgreidd iðgjöld sem þeir hafa greitt í íslenskan lífeyrissjóð. Þetta á við um þig nema þú eigir ríkisfang í einhverju aðildarlanda innan EES svæðisins, sem eru:

  • EFTA-löndin: Ísland, Lichtenstein og Noregur auk Sviss (ekki aðili að EES).
  • ESB-löndin frá og með janúar 2007: Austurríki – Belgía – Bretland – Búlgaría – Danmörk – Eistland – Finnland – Frakkland – Grikkland – Holland – Ítalía – Írland - Kýpur (gríski hlutinn) – Lúxemborg – Lettland – Litháen – Malta – Portúgal – Pólland – Rúmenía – Slóvakía – Slóvenía – Spánn – Svíþjóð – Tékkland – Ungverjaland – Þýskaland.

Hafir þú átt ríkisfang innan EES svæðisins meðan greiðslur fóru fram eða verið með tvöfalt ríkisfang, annað innan EES svæðisins, áttu ekki rétt á endurgreiðslu iðgjalda.

Með umsókn um endurgreiðslu skal fylgja:

  • staðfesting launagreiðanda á starfslokum
  • afrit af vegabréfi
  • afrit eða staðfesting á farseðli
  • upplýsingar um reikningsnúmer í íslenskum banka.

Skattalegri meðhöndlun skal háttað samkvæmt þeim reglum sem gilda um greiðslu lífeyris þegar endurgreiðsla á sér stað.

Tekið skal fram að hvert mál er metið og því oft nauðsynlegt að afla staðfestingar frá viðkomandi landi um varanlega búsetu áður en endurgreiðsla er framkvæmd.

Flýtileiðir




Language


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica