Fjárfestingarstefna A-deildar

Nánari umfjöllun um einstaka verðbréfaflokka
Við ráðstöfun fjármagns og eignastýringu á verðbréfasöfnum sjóðsins eru eftirfarandi viðmið höfð um skiptingu eigna þannig að eignarhluti í einstökum verðbréfaflokkum geti verið á bilinu:
Innlán 0-20%
- Verðtryggðir og óverðtryggðir innlánsreikningar sem og skammtímainnlán á hagstæðustu vöxtum sem bjóðast hverju sinni.
Skuldabréf 40–80%
- Ríkistryggð bréf 20–55%: Skuldabréf útgefin af ríkissjóði eða með ábyrgð ríkissjóðs, s.s. húsnæðisbréf, húsbréf, íbúðabréf, ríkisbréf og spariskírteini ríkissjóðs.
- Skuldabréf sveitarfélaga 0–15%: Skuldabréf útgefin af sveitarfélögum, með trausta rekstrar- og fjárhagsstöðu, eða með ábyrgð þeirra.
- Skuldabréf lánastofnana 0–15%: Skuldabréf útgefin af bönkum og sparisjóðum, eignarleigufyrirtækjum, Fjárfestingarlánasjóðum og stofnlánasjóðum atvinnuveganna enda starfi þessir aðilar samkvæmt lögum og undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins.
- Skuldabréf fyrirtækja 0–10%: Skuldabréf stærri fyrirtækja með trausta eiginfjárstöðu og góða rekstrarafkomu, aðallega skuldabréf fyrirtækja sem skráð eru í Kauphöll Íslands.
- Veðskuldabréf 5–30%: Skuldabréf tryggð með veði í fasteignum, bundin þeim takmörkunum að veðhlutfall fari ekki yfir 65% af markaðsvirði viðkomandi eignar eða 65% af fasteignamati, hvort sem hærra reynist. Strangari reglur gilda um sérhæft atvinnuhúsnæði.
-
Erlend skuldabréf 0–5%: Skuldabréf í félögum sem skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði.
Hlutabréf 10–60%
- Innlend hlutabréf 3–15%: Innlend hlutabréf í fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll Íslands. Miðað er við að vægi óskráðra fyrirtækja verði ekki hærra en 15% af innlendri hlutabréfaeign sjóðanna á hverjum tíma.
-
Erlend hlutabréf 10-50%: Hlutabréfasjóðir eða sérgreind hlutabréfasöfn í hlutafélögum sem skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði. Til samstarfs um ávöxtun og fjárstýringu er miðað við að velja fjóra eða fleiri ótengda og óháða aðila.
Sjóðir um sameiginlega fjárfestingu 0-30%
- Framtakssjóðir 0-20%: Framtakssjóðir sem eru almennt ekki skráðir á markaði og hafa líftíma í kringum 10 ár. Sjóðirnir geta verið sjóðasjóðir eða beinir sjóðir þar sem markmið er um ávöxtun umfram almenna hlutabréfamarkaði. Innlendar framtaksfjárfestingar eru á bilinu 0-5% og erlendar á bilinu 0-15%.
- Fasteignasjóðir 0-10%: Sjóðir sem hafa það markmið að fjárfesta í fasteignum þar sem líftími sjóðanna er í kringum 10 ár. Sjóðirnir geta verið sjóðasjóðir eða beinir sjóðir. Geta ýmist verið skráðir eða óskráðir sjóðir. Fjárfestingar í innlendum fasteignasjóðum eru á bilinu 0-5% og í erlendum á bilinu 0-5%.
-
Hrávörusjóðir 0-5%: Sjóðir sem hafa það markmið að fjárfesta í fjárfestingatækifærum tengdum hrávörum.
