Fjárfestingarstefna B-deildar og LH

FjarfestingarstefnaBdeildarogLH


Nánari umfjöllun um einstaka verðbréfaflokka


Við ráðstöfun fjármagns og eignastýringu á verðbréfasöfnum sjóðanna eru eftirfarandi viðmið höfð um skiptingu eigna þannig að eignarhluti í einstökum verðbréfaflokkum geti verið á bilinu:

Innlán 0-10%

  • Verðtryggðir og óverðtryggðir innlánsreikningar sem og skammtímainnlán á hagstæðustu vöxtum sem bjóðast hverju sinni.

Skuldabréf 40–70%

  • Ríkistryggð bréf 20–50%: Skuldabréf útgefin af ríkissjóði eða með ábyrgð ríkissjóðs, s.s. húsnæðisbréf, húsbréf, íbúðabréf, ríkisbréf og spariskírteini ríkissjóðs.

  • Skuldabréf sveitarfélaga 0–15%: Skuldabréf útgefin af sveitarfélögum, með trausta rekstrar- og fjárhagsstöðu, eða með ábyrgð þeirra.

  • Skuldabréf lánastofnana 0–15%: Skuldabréf útgefin af bönkum og sparisjóðum, eignarleigufyrirtækjum, Fjárfestingarlánasjóðum og stofnlánasjóðum atvinnuveganna enda starfi þessir aðilar samkvæmt lögum og undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins.

  • Skuldabréf fyrirtækja 0–10%: Skuldabréf stærri fyrirtækja með trausta eiginfjárstöðu og góða rekstrarafkomu, aðallega skuldabréf fyrirtækja sem skráð eru í Kauphöll Íslands.

  • Veðskuldabréf 5–25%: Skuldabréf tryggð með veði í fasteignum, bundin þeim takmörkunum að veðhlutfall fari ekki yfir 65% af markaðsvirði viðkomandi eignar eða 65% af fasteignamati, hvort sem hærra reynist. Strangari reglur gilda um sérhæft atvinnuhúsnæði.

  • Erlend skuldabréf 0–5%: Skuldabréf í félögum sem skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði.

Hlutabréf 10–50%

  • Innlend hlutabréf 0–10%: Innlend hlutabréf í fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll Íslands. Miðað er við að vægi óskráðra fyrirtækja verði ekki hærra en 15% af innlendri hlutabréfaeign sjóðanna á hverjum tíma.

  • Erlend hlutabréf 10-50%: Hlutabréfasjóðir eða sérgreind hlutabréfasöfn í hlutafélögum sem skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði. Til samstarfs um ávöxtun og fjárstýringu er miðað við að velja fjóra eða fleiri ótengda og óháða aðila.

Sjóðir um sameiginlega fjárfestingu 0-15%

  • Framtakssjóðir 0-15%: Framtakssjóðir sem eru almennt ekki skráðir á markaði og hafa líftíma í kringum 10 ár. Sjóðirnir geta verið sjóðasjóðir eða beinir sjóðir þar sem markmið er um ávöxtun umfram almenna hlutabréfamarkaði. Innlendar framtaksfjárfestingar eru á bilinu 0-5% og erlendar á bilinu 0-10%.

  • Fasteignasjóðir 0-10%: Sjóðir sem hafa það markmið að fjárfesta í fasteignum þar sem líftími sjóðanna er í kringum 10 ár. Sjóðirnir geta verið sjóðasjóðir eða beinir sjóðir. Geta ýmist verið skráðir eða óskráðir sjóðir.Fjárfestingar í innlendum fasteignasjóðum eru á bilinu 0-5% og í erlendum á bilinu 0-5%.

  • Hrávörusjóðir 0-5%: Sjóðir sem hafa það markmið að fjárfesta í fjárfestingatækifærum tengdum hrávörum.





Language


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica