Fjárfestingarstefna Séreignar

Nánari umfjöllun um einstaka verðbréfaflokka Leiðar I
Við ráðstöfun fjármagns og eignastýringu á verðbréfasöfnum Leiðar I eru eftirfarandi viðmið höfð um skiptingu eigna þannig að eignarhluti í einstökum verðbréfaflokkum geti verið á bilinu:
Innlán 0-20%
-
Verðtryggðir og óverðtryggðir innlánsreikningar sem og skammtímainnlán á hagstæðustu vöxtum sem bjóðast hverju sinni.
Skuldabréf 20–70%
-
Ríkistryggð bréf 10–60%: Skuldabréf útgefin af ríkissjóði eða með ábyrgð ríkissjóðs, s.s. húsnæðisbréf, húsbréf, íbúðabréf, ríkisbréf og spariskírteini ríkissjóðs. Séreign LSR hefur að auki heimild til að fjárfesta í ríkisskuldabréfasjóðum, með kaupum á hlutum eða einingum útgefnum af þeim.
-
Innlend skuldabréf 0–30%: Skuldabréf útgefin af sveitarfélögum, fyrirtækjum og lánastofnunum, með trausta rekstrar- og fjárhagsstöðu, eða með ábyrgð þeirra. Séreign LSR hefur að auki heimild til að fjárfesta í blönduðum skuldabréfasjóðum, með kaupum á hlutum eða einingum útgefnum af þeim.
-
Erlend skuldabréf 0–10%: Skuldabréf í félögum sem skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði.
Hlutabréf 25–60%
-
Innlend hlutabréf 0–15%: Innlend hlutabréf í fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll Íslands. Miðað er við að vægi óskráðra fyrirtækja verði ekki hærra en 15% af innlendri hlutabréfaeign sjóðanna á hverjum tíma.
-
Erlend hlutabréf 25-45%: Hlutabréfasjóðir eða sérgreind hlutabréfasöfn í hlutafélögum sem skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði. Til samstarfs um ávöxtun og fjárstýringu er miðað við að velja fjóra eða fleiri ótengda og óháða aðila.
Sjóðir um sameiginlega fjárfestingu 0-10%
-
Erlendir framtaks- og fasteignasjóðir, þar með talið sjóðasjóðir og beinir sjóðir.
Nánari umfjöllun um einstaka verðbréfaflokka Leiðar II
Við ráðstöfun fjármagns og eignastýringu á verðbréfasöfnum Leiðar II eru eftirfarandi viðmið höfð um skiptingu eigna þannig að eignarhluti í einstökum verðbréfaflokkum geti verið á bilinu:
Innlán 0-20%
-
Verðtryggðir og óverðtryggðir innlánsreikningar sem og skammtímainnlán á hagstæðustu vöxtum sem bjóðast hverju sinni.
Skuldabréf 20–90%
-
Ríkistryggð bréf 20–70%: Skuldabréf útgefin af ríkissjóði eða með ábyrgð ríkissjóðs, s.s. húsnæðisbréf, húsbréf, íbúðabréf, ríkisbréf og spariskírteini ríkissjóðs. Séreign LSR hefur að auki heimild til að fjárfesta í ríkisskuldabréfasjóðum, með kaupum á hlutum eða einingum útgefnum af þeim.
-
Innlend skuldabréf 0–30%: Skuldabréf útgefin af sveitarfélögum, með trausta rekstrar- og fjárhagsstöðu, eða með ábyrgð þeirra. Séreign LSR hefur að auki heimild til að fjárfesta í blönduðum skuldabréfasjóðum, með kaupum á hlutum eða einingum útgefnum af þeim.
-
Erlend skuldabréf 0–10%: Skuldabréf í félögum sem skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði.
Hlutabréf 0–25%
-
Innlend hlutabréf 0–15%: Innlend hlutabréf í fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll Íslands. Miðað er við að vægi óskráðra fyrirtækja verði ekki hærra en 15% af innlendri hlutabréfaeign sjóðanna á hverjum tíma.
-
Erlend hlutabréf 0-30%: Hlutabréfasjóðir eða sérgreind hlutabréfasöfn í hlutafélögum sem skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði. Til samstarfs um ávöxtun og fjárstýringu er miðað við að velja fjóra eða fleiri ótengda og óháða aðila.
Sjóðir um sameiginlega fjárfestingu 0-10%
-
Erlendir framtaks- og fasteignasjóðir, þar með talið sjóðasjóðir og beinir sjóðir.
