Markmið og viðmið ávöxtunar
Við árangursmælingar eignaflokka er ávöxtun þeirra borin saman við eftirfarandi viðmið:
- Viðmið um raunávöxtun innlendra skuldabréfa er 3,5%.
- Viðmið um ávöxtun erlendra skuldabréfa er Barclays World Global Bond Index.
- Viðmið innlendra hlutabréfa er úrvalsvísitala aðallista Nasdaq OMXi.
- Viðmið erlendra hlutabréfa er heimsvísitala hlutabréfa, MSCI World Index.
- Viðmið um ávöxtun erlendra framtakssjóða er 2% umfram MSCI World Index vísitöluna.
