Þróun verðbréfaeignar
Eignasamsetning LSR og LH hefur tekið töluverðum breytingum undanfarin ár. Á meðfylgjandi mynd má sjá verðbréfaeign sjóðanna frá árinu 2000 til ársloka 2010. Í stuttu máli hafa einstakir eignaflokkar þróast með eftirfarandi hætti síðustu 10 árin:
-
Innlend skuldabréfaeign hefur lækkað úr 77,9% í 63,0%.
-
Erlend verðbréfaeign stóð í 0,5% í árslok 2010 en fyrstu fjárfestingar LSR og LH í erlendum skuldabréfum voru árið 2003.
-
Innlend hlutabréfaeign hefur minnkað úr 4,5% í í 1,7% en var hæst 15,9% árið 2007
-
Vægi erlendra hlutabréfa hefur aukist úr 17,6% í 29,7%.
-
Aðrar fjárfestingar námu í árslok 2010 5,1% af heildarverðbréfaeign sjóðanna en fyrstu fjárfestingar í þeim eignaflokki voru árið 2006.
