Breyta láni
Veðflutningur
Við kaup og sölu eigna er hægt að flytja LSR lán á milli eigna.
Gögn sem þurfa að fylgja eru:
- Umókn um veðflutning
- Síðustu kvittanir áhvílandi lána
- Veðbókarvottorð (sjóðurinn getur í flestum tilfellum útvegað rafrænt veðbókarvottorð gegn vægu gjaldi)
- Kaupsamningur
Nafnabreyting (skuldaraskipti)
Við kaup og sölu eigna er hægt að láta LSR lán fylgja eigninni en þá þarf að nafnabreyta láninu.
Gögn sem þurfa að fylgja eru:
- Þinglýstur kaupsamningur
- Umsókn um skuldaraskipti
- Greiðslumat ef samanlögð lán hjá sjóðnum fara yfir 10 milljónir
Skilmálabreyting
Breyting á greiðsluskilmálum getur verið beiðni um að lengja/stytta lánstíma, breyta breytilegum vöxtum í fasta vexti, fjölga/fækka gjalddögum á ári, breyta tegund láns (úr jafngreiðsluláni í jafnar afborganir og öfugt).
