Spurt og svarað

Hver er munurinn á A-deild, B-deild og LH?

Í byrjun árs 1997 var A-deild LSR stofnuð en hún byggir á stigakerfi þar sem sjóðfélagi ávinnur sér réttindi miðað við greidd iðgjöld sem taka mið af heildarlaunum. Á sama tíma var eldra kerfi sjóðsins, B-deild, lokað fyrir nýjum sjóðfélögum. Í B-deildinni ávinna sjóðfélagar sér 2% réttindi á ári miðað við fullt starf. Réttindi sjóðfélaga í B-deild reiknast út frá föstum launum fyrir dagvinnu, persónuuppbót og orlofsuppbót skv. kjarasamningum við starfslok. Reglur LH eru áþekkar B-deildinni en aðild að sjóðnum eiga einungis starfandi hjúkrunarfræðingar.

Hverjir greiða til LSR, A-deildar, B-deildar og LH?

Allir fastráðnir ríkisstarfsmenn eiga skylduaðild að LSR, nema um annað sé samið í kjarasamningum. Allir nýráðnir starfsmenn greiða í A-deild LSR. B-deild LSR var lokað fyrir nýjum sjóðfélögum í árslok 1996. Þeir sem greiddu til LH eða B-deildar LSR í árslok 1996 hafa áfram rétt til aðildar. Einstaklingar sem greitt hafa til A- eða B-deildar LSR og ekki hafa skylduaðild að öðrum lífeyrissjóði eiga þess kost að greiða til A-deildar enda samþykki launagreiðandi þær mótframlagskröfur sem gerðar eru hverju sinni (nú 11,5% af heildarlaunum).

Hversu hátt iðgjald er greitt til A-deildar LSR?

Iðgjald til A-deildar er greitt af heildarlaunum. Sjóðfélagi greiðir fast 4% en mótframlag launagreiðanda er breytilegt, nú 11,5%, sem haldist hefur óbreytt frá stofnun deildarinnar.

Af hverju er svona hátt mótframlag launagreiðanda til A-deildar LSR?

Við stofnun hinnar nýju deildar innan LSR, A-deildar, var gengið út frá þeirri forsendu að réttindi skyldu vera jafnverðmæt og þau höfðu verið fram til þessa. Réttindi sjóðfélaga í LSR eru skilgreind í lögum og til að standa undir þeim lífeyrisskuldbindingum þurfti lögbundið iðgjald að vera 15,5% af heildarlaunum (4%+11,5%). 

Hversu hátt iðgjald er greitt til B-deildar LSR?

Iðgjald til B-deildar greiðist af föstum launum fyrir dagvinnu, persónuuppbót, orlofsuppbót og vaktaálagi. Sjóðfélagi greiðir 4% en mótframlag launagreiðanda er 8%.

Hversu hátt iðgjald er greitt til LH?

Iðgjald til LH greiðist af föstum launum fyrir dagvinnu, persónuuppbót, orlofsuppbót og vaktaálagi. Sjóðfélagi greiðir 4% en mótframlag launagreiðanda er 8%.

Hvað er 32 ára regla?

Sá sem nær þessari reglu hefur greitt í sjóðinn í 32 ár og áunnið sér 2% rétt á ári miðað við fullt starf. Velji sjóðfélagi þessa reglu verður hann iðgjaldafrír við reglumarkið. Hafi sjóðfélagi greitt í sjóðinn í 32 ár áður en hann verður 65 ára bætist við 1% réttur á ári fyrir fullt starf þar til 65 ára aldri er náð. Ef sjóðfélagi heldur áfram störfum eftir 65 ára aldur bætir hann við sig 2% rétti á ári miðað við fullt starf. Sjóðfélagi getur farið á lífeyri við 65 ára aldur.

Launagreiðandi greiðir bæði iðgjald og mótframlag sjóðfélaga fyrir dagvinnu, persónuuppbót og orlofsuppbót. Skila skal iðgjöldum vegna iðgjaldafrírra sjóðfélaga á sér skilagrein.

Sjóðfélagi verður ekki iðgjaldafrír vegna vaktaálags.

Hvað er 95 ára regla?

Þeir sjóðfélagar sem ná samanlögðum aldri og iðgjaldagreiðslutíma upp á 95 ár fyrir 64 ára aldur geta valið þessa reglu. Velji sjóðfélagi þessa reglu fellur iðgjaldagreiðsla niður við reglumarkið, en sjóðfélagi bætir við sig 2% lífeyrisrétti fyrir hvert ár í fullu starfi. Lífeyristaka getur hafist við reglumarkið en þó aldrei fyrr en við 60 ára aldur.

Launagreiðandi greiðir bæði iðgjald og mótframlag sjóðfélaga fyrir dagvinnu, persónuuppbót og orlofsuppbót. Skila skal iðgjöldum vegna iðgjaldafrírra sjóðfélaga á sér skilagrein.

Sjóðfélagi verður ekki iðgjaldafrír vegna vaktaálags.

Þarf að greiða iðgjald fyrir erlenda ríkisborgara?

Já, það þarf að greiða iðgjöld í lífeyrissjóð fyrir alla launþega á aldrinum 16-70 ára sem starfa á Íslandi. Hins vegar kunna erlendir ríkisborgarar að eiga rétt til að fá iðgjöld sín endurgreidd þegar þeir láta af störfum. Slíkan endurgreiðslurétt eiga ríkisborgarar utan evrópska efnahagssvæðisins skv. ákveðnum reglum. Sjá nánar kafla um endurgreiðslur til „Erlendr ríkisborgara“ undir síðunni „Réttindi“.




Language


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica