Að sækja um lífeyri
Það er ekki flókið að sækja um lífeyri miðað við hver tímamótin eru í lífi þínu. Þú þarft ekki að láta af störfum til að geta hafið töku lífeyris í A-deild en réttindaávinnsla meðfram lífeyristöku er önnur en ef þú frestar töku lífeyris. Þú þarft að fylla út umsóknareyðublað, koma með það á skrifstofuna eða senda það til sjóðsins.
