Að sækja um lífeyri

Hvernig skal bera sig að?

Umsókn um ellilífeyri er ekki flókin miðað við hver tímamót eru í lífi þínu. Þú þarft að fylla út umsóknareyðublað og vinnuveitandi sér um að senda til sjóðsins tilkynningu um starfslok þín. Skoðaðu umsóknareyðublaðið og ef eitthvað vefst fyrir þér eru þjónustufulltrúar reiðubúnir að aðstoða þig.

Ellilífeyrir

Þegar kemur að lífeyristöku þarf launagreiðandi að tilkynna sjóðnum um starfslok þín og þú þarft að fylla út eyðublað og sækja um lífeyri. Tvö atriði á umsóknareyðublaðinu gætu vafist fyrir þér, þ.e. hvort þú vilt að lífeyrir þinn taki sömu breytingum og verða á launum fyrir starfið (eftirmannsregla) eða hvort hann fylgi almennu reglunni og taki meðaltalsbreytingum. Ef þú ert að fara á lífeyri út á geymdan rétt áttu ekki val. Hitt atriðið er hvort þú hefur í meira en 10 ár gegnt öðru starfi sem gæti verið betur launað en lokastarfið. Sjá nánari upplýsingar hér á heimasíðu LSR og einnig getur starfsfólk sjóðsins leiðbeint þér með þessi atriði.

Örorka

Ef þú hefur tapað starfsorku og átt rétt á örorkulífeyri þarftu að fylla út umsókn á þar til gerðu eyðublaði og koma með á skrifstofu sjóðsins, senda í pósti eða faxi. Afgreiðsla á örorkulífeyri getur tekið nokkurn tíma og með umsókninni þurfa að fylgja ýmis gögn; mikilvægt að þau skili sér öll til að tefja ekki afgreiðslu.

Makalífeyrir

Eftirlifandi maki á rétt á makalífeyri. Athugið að fyrrverandi makar geta líka átt rétt. Sækja þarf sérstaklega um lífeyrinn. LSR getur aðstoðað umsækjendur við að afla nauðsynlegra fylgigagna.




Language


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica