Skattlagning lífeyris

Þrjú skattþrep

Það er á ábyrgð þína að tilkynna eftir hvaða skattþrepi á að skattleggja lífeyrisgreiðslur þínar. Ef þú færð laun/lífeyri greidd frá fleiri en einum launagreiðanda er mikilvægt að slíkar upplýsingar berist sjóðnum. Þannig tryggir þú að réttur tekjuskattur sé reiknaður hverju sinni. Ef röngum tekjuskatti er skilað kemur til uppgjörs við álagningu í ágúst ár hvert með 2,5% álagi.

Tekjuskattur af launatekjum er reiknaður í þrepum.

Staðgreiðsla skatta árið 2012:

• Af fyrstu 230.00 kr. er tekjuskattur 37,34%
• Af næstu 474.367 kr. er tekjuskattur 40,24%
• Af fjárhæð umfram 704.367 kr. er tekjuskattur 46,24%

Fullur persónuafsláttur árið 2012 er kr. 46.532 á mánuði.

Skattleysismörk lífeyrisþega eru nú 124.617 kr. á mánuði miðað við 100% skattkort.




Language


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica