Maka- og barnalífeyrir

Trygging við fráfall sjóðfélaga

Etirlifandi maki sjóðfélaga á rétt á ævilöngum makalífeyri.  Barnalífeyrir er greiddur til 18 ára aldurs yngsta barns.

Makalífeyrir

Eftirlifandi maki á rétt á makalífeyri sem greiddur er ævilangt en fellur niður ef makinn gengur í hjónaband að nýju. Makalífeyrir ávinnst á hjúskapartíma og helst sú réttindaávinnsla þrátt fyrir hjúskaparslit.

Fjárhæð makalífeyris fer eftir áunnum réttindum látins sjóðfélaga og fær makinn helming af þeim rétti.

Eftirlifandi maki á rétt á 20% að auki að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Skilyrði fyrir 20% viðbótarréttindum:

  • að hinn látni sjóðfélagi hafi við andlátið verið í starfi er veitti honum aðild að sjóðnum,
  • að hann hafi verið byrjaður að taka lífeyri og upphaf lífeyristöku hans hafi verið í beinu framhaldi af starfi sem veitti honum aðild að sjóðnum,
  • að hann hafi greitt iðgjald til sjóðsins af fullu starfi í 15 ár eða lengur og ekki greitt iðgjald til annars lífeyrissjóðs eftir að greiðslum til þessa sjóðs lauk.
  • 20% viðbótarréttindi miðast við að hinn látni hafi verið í fullu starfi við starfslok, en eru hlutfallslega minni ef sjóðfélaginn hefur verið í lægra starfshlutfalli.

Dæmi:
Hinn látni hafði greitt í sjóðinn í 25 ár og áunnið sér 50% lífeyrisrétt. Makinn fær helming af þeim rétti + 20% sem gera samtals 45%. Hafi hinn látni greitt í sjóðinn í 25 ár en hætt og farið að greiða annað er réttur makans 25%.

Barnalífeyrir

Börn og kjörbörn látinna sjóðfélaga og örorkulífeyrisþega eiga rétt á barnalífeyri til 18 ára aldurs. Sama gildir um fósturbörn sem sjóðfélagi hafði á framfæri sínu að mestu eða öllu leyti. Barnalífeyrir greiðist til framfæranda.

Flýtileiðir




Language


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica