LH
Víðtæk lífeyrisréttindi
Aðild að LH tryggir þér og fjölskyldu þinni víðtæk réttindi. Greiddur er ævilangur ellilífeyrir, makalífeyrir er ótímabundinn og greidd er örorkutrygging komi til tekjutaps auk barnalífeyris.
Aðild að LH tryggir þér og fjölskyldu þinni víðtæk réttindi. Greiddur er ævilangur ellilífeyrir, makalífeyrir er ótímabundinn og greidd er örorkutrygging komi til tekjutaps auk barnalífeyris.
Almennur lífeyristökualdur er 65 ár. Samkvæmt aðlögunarreglu eða 95 ára reglu gætir þú hafið töku lífeyris fyrr. Ekki er heimilt að vera í föstu starfi meðfram lífeyristöku.
Við fráfall sjóðfélaga á maki rétt á lífeyri. Ef þú verður fyrir orkutapi er greiddur örorkulífeyrir. Börn sjóðfélaga geta átt rétt á lífeyri til 18 ára aldurs.
Tvær meginreglur gilda um breytingar á framtíðarlífeyrisgreiðslum; að lífeyrir fylgi meðalbreytingum á launum opinberra starfsmanna eða breytingum á kjarasamningi.