Afur á forsíðu
  english    veftré    leita   
 Um LSR
Starfsmenn
Stjórn
Stefnumótun
Ársreikningar
Lög og samþykktir
Tenglar
Spurningar og svör
Fréttir
Fréttabréf
Eyðublöð

Algeng spurning
Hvenær er hægt að hefja töku ellífeyris hjá LH?

 Fréttir  >>
Prenta textann

Mánudagur 31. maí 2010
LSR og LH kaupa íbúðabréf af Seðlabankanum

LSR og LH hafa gert samkomulag við Seðlabanka Íslands um að festa kaup á hluta af þeim Íbúðabréfum sem bankinn bauð til kaups í lokuðu útboði til lífeyrissjóða. Um er að ræða verðtryggð skuldabréf með ábyrgð ríkissjóðs. Bréfin eru keypt með 7,2% ávöxtunarkröfu sem eru mun betri kjör en fást á almennum markaði í dag. Af hálfu Seðlabankans er það skilyrði að lífeyrissjóðirnir greiði fyrir bréfin með evrum.

Að mati stjórnenda LSR og LH er hér um hagstæð kaup að ræða og eðlilegt að innleysa hluta af erlendum eignum lífeyrissjóðanna til að greiða fyrir skuldabréfin.

Nánari upplýsingar má finna hér

Þriðjudagur 18. maí 2010
Útsending yfirlita til sjóðfélaga

Árleg útsending yfirlita stendur yfir í þessari viku. Allir greiðandi sjóðfélagar fá sent yfirlit í pósti með upplýsingum um iðgjaldagreiðslur ársins 2009. Mjög mikilvægt er að bera saman yfirlitið og launaseðla frá launagreiðanda. Vanti innborganir þá skal hafa samband við launagreiðanda eða LSR.

Nú gefst sjóðfélögum kostur á að afþakka yfirlit á pappír og sækja upplýsingar um iðgjaldagreiðslur og réttindi með rafrænum hætti á sjóðfélagavef LSR.

Með yfirlitum fylgir Fréttabréf LSR og upplýsingar um starfsemi sjóðanna á árinu 2009.

LSR vill vekja athygli á kynningarfundi fyrir sjóðfélaga þann 27. maí nk. Nánari upplýsingar um fundinn er hægt að sjá hér, en nauðsynlegt er að skrá þátttöku með því að hringja í síma 510-6100 eða senda tölvupóst á netfangið lsr@lsr.is.

Mánudagur 17. maí 2010
Lífeyrisskuldbindingar – athugasemd við frétt RÚV

Í fréttum RÚV í gær, sunnudaginn 16. maí, var fjallað um lífeyrisskuldbindingar sem hvíla á lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna. Rætt var við þingmann sem sagði skuldbindingarnar vera eins og tvöföld Icesave skuldin. Nauðsynlegt er að gera nokkrar athugasemdir við það sem þar kom fram og skýra annað.

  • 14.05.2010 Fjölmennur fundur með sjóðfélögu á lífeyri
  • 26.04.2010 Aukið aðgengi að upplýsingum
  • 08.04.2010 Lífeyrissjóðir draga lærdóm af hruninu
  • 15.02.2010 Upplýsingar fyrir skattframtöl
  • 19.11.2009 Kröfur lífeyrissjóða
  • 30.09.2009 Lækkun á breytilegum vöxtum LSR lána
  • 11.09.2009 Aðkoma lífeyrissjóða að endurreisn atvinnulífsins
  • 25.08.2009 Aðkoma LSR að skráðum félögum í fjárhagsvanda
  • 29.05.2009 Lækkun á föstum vöxtum LSR lána
  • 17.04.2009 LSR tekur við endurhæfingargjaldi frá 1. maí 2009
  • 30.03.2009 Villandi fréttaflutningur
  • 30.03.2009 Yfirlýsing í tilefni umfjöllunar Morgunblaðsins
  • 30.03.2009 Erfiðasta ár í sögu LSR og LH að baki
  • 23.03.2009 Vegna flutnings á SPRON til Nýja Kaupþings
  • 16.03.2009 Forskráning á skattframtöl
  • 11.03.2009 Lög um tímabundna heimild til útgreiðslu séreignarsparnaðar
  • 29.01.2009 Samantekt upplýsinga til sjóðfélaga LSR og LH.
  • 19.12.2008 Verðbréfaeign LSR og LH
  • 19.12.2008 Séreign LSR
  • 25.11.2008 Ýtarlegri upplýsingar á heimasíðu LSR fyrir þá sem lenda í greiðsluerfiðleikum