Fjárfestingarleiðir


Sjóðfélagar í Séreign LSR geta valið milli leiðar I, leiðar II, leiðar III og Sér-leiðar þar sem fjárfestingarstefna breytist sjálfkrafa eftir aldri sjóðfélaga.

Fjárfestingarleiðir Séreign LSR

  Hlutabréf
 Skuldabréf Sjóðir um
sameiginlega
fjárfestingu
 Innlán Sveiflur í ávöxtun
 Aldur í Sér-leið
 Leið I
 40%  50%  5%  5%  Miklar sveiflur
 54 ára og yngri
 Leið II  25%  65%  5%  5%  Litlar sveiflur
 54 ára og yngri
 Leið III  0%  0%  0%  100%  Lágmarkssveiflur  55 ára og eldri

Velji sjóðfélagi eina af leiðunum þremur helst sú fjárfestingarleið óbreytt en í Sér-leið færist inneign sjálfkrafa milli leiða eftir aldri og áhættuvali. Hægt er að skipta um fjárfestingarleið hvenær sem er á sparnaðartímanum án aukakostnaðar. Einnig er unnt að nýta sér fleiri en eina fjárfestingarleið og dreifa áhættunni kjósi rétthafar svo. Við mælum með Sér-leið sem er þægilegur kostur í séreignarsparnaði.

Við val á fjárfestingarleið er skynsamlegt að taka mið af aldri og viðhorfi til áhættu. Almenna reglan er sú að eftir því sem sjóðfélagi er yngri því meira er áhættuþol hans, hann hefur lengri tíma til að ávaxta sparnað sinn og þolir því frekar sveiflur sem fylgja hlutabréfaverði. Jafnan er það svo að fjárfestingar í skuldabréfum eru áhættuminni en fjárfestingar í hlutabréfum. Sögulega séð hafa hlutabréf gefið af sér hærri ávöxtun en skuldabréf en áhætta og sveiflur eru jafnframt meiri. Ávallt ber að hafa í huga að lífeyrissparnaður er langtímafjárfesting.

Viljir þú skipta um fjárfestingarleið, smelltu þá hér. Flutningur milli leiða er sjóðfélögum að kostnaðarlausu.

Við val á fjárfestingarleið er almenna reglan sú að eftir því sem sjóðfélagi er yngri, því meira er áhættuþol hans; hann hefur lengri tíma til að ávaxta sparnað sinn og þolir því frekar sveiflur sem fylgja hlutabréfaverði.




Language


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica