Leið I
Samkvæmt fjárfestingarstefnu leiðar I er vægi hlutabréfa að hámarki 40% sem þýðir að sveiflur í ávöxtun geta orðið nokkrar. Leið I hentar þeim sem eiga mörg ár til starfsloka og hafa því tímann fyrir sig til að jafna út sveiflurnar og eiga von á að uppskera háa ávöxtun.
Hægt er að sjá nánari upplýsingar um eignasamsetningu og ávöxtun leiðar I á Upplýsingayfirliti Séreignar LSR.
