Leið III
Samkvæmt fjárfestingarstefnu leiðar III er séreignarsparnaðurinn ávaxtaður að öllu leyti á verðtryggðum innlánsreikningum. Þessi leið hentar einkum þeim sem eiga skammt í lífeyristöku eða þeim sem vilja lágmarks áhættu og lágmarka sveiflur í ávöxtun. Ávöxtun í leið III er sambærileg við ávöxtun á bankareikningi með hæstu verðtryggðu vöxtum og breytast vextirnir með almennu vaxtastigi. Eign leiðar III er dreift jafnt á fjórar innlánsstofnanir. Reglulega er leitað að sem bestum kjörum til handa sjóðfélögum og mun Séreign LSR velja hagstæðustu innlánskjör á hverjum tíma.
Hægt er að sjá nánari upplýsingar um eignir og ávöxtun leiðar III á Upplýsingayfirliti Séreignar LSR.
