Séreign LSR
Hjá Séreign LSR eru engar þóknanir teknar eða umsýslugjöld. Eignastýring LSR sér um ávöxtun eigna samhliða öðrum eignum LSR, stærsta lífeyrissjóðs landsins. Varfærni og reynsla einkennir eignastýringu fjárfestingarleiða Séreignar LSR.
Kostir séreignarsparnaðar – af hverju séreignarsparnaður?
Séreignarsparnaður er bein launahækkun fyrir þig þar sem launagreiðanda ber að greiða kjarasamningsbundið mótframlag við framlag þitt í séreignarsjóð. Framlög berast í formi iðgjalda sem eru frjálst hlutfall af heildarlaunum. Vegna ákvæða laga um frestun skattlagningar þá er þér heimilt að greiða allt að 2% af heildarlaunum þínum sem iðgjald í séreignarsjóð til viðbótar við skyldubundið 4% iðgjald í lífeyrissjóð. Þú átt rétt á kjarasamningsbundnu mótframlagi frá launagreiðanda. Kostir séreignarsparnaðar eru því ótvíræðir:
- Skattalegt hagræði myndast þar sem iðgjald er ekki skattlagt við innborgun.
- Fjármagnstekjuskattur er ekki greiddur.
- Séreign skerðir hvorki barna- né vaxtabætur.
- Sparnaðurinn er séreign sem erfist.
- Úttekt getur hafist við 60 ára aldur og útborgunarreglur eru sveigjanlegar.
- Þægilegt sparnaðarform þar sem launagreiðandi sér um að greiða sparnaðinn til séreignarsjóðs.
- Meira ráðstöfunarfé á eftirlaunaárum.
Mótframlag launagreiðanda, ásamt skattfrestun við innborgun gerir það að verkum að enginn annar sparnaður stenst samanburð við séreignarlífeyrissparnað.
