Kynningarefni

Í samræmi við stefnuyfirlýsingu gefur sjóðurinn út margháttað kynningarefni til upplýsingar fyrir sjóðfélaga sína.

GoðafossUpplýsinga- og samráðsfundir

Árlega halda LSR og LH upplýsinga og samráðsfundi fyrir lífeyrisþega og maka þeirra. Fundir þessir hafa verið haldnir reglulega í Reykjavík en einnig hefur verið boðað til slíkra fundar á nokkrum stöðum á landsbyggðinni.

Fundir eru haldnir í maí á hverju ári.

Næsti fundur verður haldinn þriðjudaginn 15. maí 2012 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 14.

Kynningarfundir fyrir sjóðfélaga

Árlega eru haldnir kynningarfundir fyrir virka sjóðfélaga í A- og
B-deild LSR sem og Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga. Sjóðfélagar skrá sig fyrirfram á fundina.

Fundir eru haldnir í maí á hverju ári.

Næsti fundur verður haldinn fimmtudaginn 24. maí á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Hægt er að velja um tvær tímasetningar; 8:30 - 10:00 eða 16:30 - 18:00.




Language


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica