Vefstefna
Tilgangur
Að uppfylla stefnu LSR um “fyrirmyndarþjónustu og öfluga upplýsingatækni”, með því að uppfylla mælikvarða um opinbera vefi samkvæmt gátlistum um innihald, nytsemi, aðgengi og þjónustu.
Framtíðarmynd
Í dag fellur vefur LSR undir 2. stig rafrænnar þjónustu: “Hægt að sækja gögn sem flýta fyrir afgreiðslu án þess að um gagnvirka þjónustu sé að ræða”.
Árið 2012 mun nýr vefur LSR flokkast undir 3. stig: “Rafrænir ferlar notaðir til þæginda fyrir notendur, rafræn umsóknarferli, spjallborð”.
Árið 2013 mun vefurinn hafa þroskast á 4. stig (hæsta stig): “Fyllilega rafræn málsmeðferð, ákvarðanataka og skil niðurstaðna. Notendur fá einstaklingsmiðaðan aðgang, óska eftir þjónustu og sækja upplýsingar um málsmeðferð og niðurstöður í gegnum vefinn.”
Gildi
- Einfaldleiki
- Samkennd
- Traust
- Öryggi

