Lífeyrisgáttin - upplýsingar um lífeyrisréttindi á einum stað

30.10.2013

Lífeyrisgáttin lógóLífeyrissjóðir landsins opna í dag aðgang að Lífeyrisgáttinni, nýrri leið sjóðfélaga til að fá á einum stað upplýsingar um áunnin lífeyrisréttindi sín í samtryggingarsjóðum.

Lífeyrisgáttina er að finna inn á Mínum síðum á vef LSR (opnast í nýjum vafraglugga).

Algengt er að fólk eigi réttindi í mörgum lífeyrissjóðum, til dæmis frá þeim tíma þegar það vann með námi hér og þar. Aðrir hafa skipt oft um starf á ferlinum og skipt þá gjarnan um lífeyrissjóð í leiðinni. Hingað til hafa sjóðfélagar fengið send yfirlit þar sem meðal annars kemur fram hvar þeir eiga lífeyrisréttindi frá fyrri tíð en sjálfir orðið að sækja upplýsingar um hver þau réttindi nákvæmlega eru. Með Lífeyrisgáttinni opnast þeim nú greið leið að þessum upplýsingum.

Á fræðsluvefnum Gott að vita má finna yfirgripsmiklar upplýsingar um lífeyrismál.

Í tilefni af opnun Lífeyrisgáttarinnar verða lífeyrissjóðir landsins með opið hús þriðjudaginn 5. nóvember 2013. LSR býður sjóðfélaga sína velkomna í hús ásamt því að bjóða upp á kynningu og fræðslu um lífeyrisréttindi. Húsið verður opið til kl. 19.


Lífeyrisgáttin - upplýsingar um lífeyrisréttindi á einum stað

Lífeyrisgáttin er leið til að fá á einum stað upplýsingar um áunnin lífeyrisréttindi í samtryggingarsjóðum. Lífeyrisgáttina er að finna inn á Mínum síðum á vef LSR (opnast í nýjum vafraglugga).