Árleg útsending sjóðfélagayfirlita vegna ársins 2020

10.06.2021

Frettabref-2021

Árleg útsending sjóðfélagayfirlita í A-deild, B-deild og Séreign LSR stendur yfir þessa dagana. Allir sem greiða í sjóði LSR sem ekki hafa afþakkað yfirlit á pappír fá sent yfirlit í pósti með upplýsingum um iðgjöld greidd á árinu 2020. Mikilvægt er að bera saman upplýsingar um greidd iðgjöld og launaseðla. Vanti innborganir skal hafa samband við launagreiðanda eða LSR.

Á Mínum síðum á vef LSR má alltaf sjá nýjustu upplýsingar um iðgjaldagreiðslur og réttindi. Sjóðfélagar eru hvattir til að vera umhverfisvænir og afþakka yfirlit á pappír. Hægt er að afþakka yfirlit á pappír með því að senda netpóst þess efnis á lsr@lsr.is eða hringja í síma 510 6100.

Með yfirlitum fylgir Fréttabréf LSR ásamt upplýsingum um starfsemi deildanna á árinu 2020. Einnig má skoða eldri fréttabréf LSR hér .