Ársfundur LSR
Ársfundur LSR verður haldinn fimmtudaginn 23. maí 2019, kl. 15, á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2. Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og launagreiðendum.
Á fundinum verður gerð grein fyrir skýrslum stjórnar LSR, ársreikningi, tryggingafræðilegri úttekt, skuldbindingum launagreiðenda, fjárfestingarstefnu og breytingum á samþykktum.
Ársskýrsla LSR fyrir árið 2018 er komin út. Vakin er athygli á að ársskýrslan er eingöngu aðgengileg á rafrænu formi á vef LSR.