Ársfundur LSR haldinn 24. maí

08.05.2023

Arsfundur-frett2Ársfundur LSR verður haldinn kl. 15:00 miðvikudaginn 24. maí næstkomandi á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2. Fundurinn verður opinn öllum sjóðfélögum og launagreiðendum.

Á fundinum verður m.a. gerð grein fyrir skýrslu stjórnar LSR, ársreikningi, tryggingafræðilegri úttekt og fjárfestingarstefnu, auk þess sem kynning verður á samþykktarbreytingum.

Fundurinn verður sendur út rafrænt hér á lsr.is og verður útsendingin kynnt síðar.

Ársreikninga LSR fyrir árið 2022 og upplýsingar um starfsemi á árinu má finna í nýlegri frétt hér á lsr.is.

Gestir eru beðnir að skrá sig á fundinn, hvort sem þeir hyggist sækja fundinn á staðnum eða fylgjast með rafrænt. Skráning fer fram hér: