Hrein eign LSR 1.293 milljarðar í árslok 2022

26.04.2023

2022-hrein-eignHrein eign Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins var 1.293 milljarðar króna í árslok 2022. Hrein raunávöxtun sjóðsins var -12,9% á árinu, en þrátt fyrir afar krefjandi ár á fjármálamörkuðum er langtímaávöxtun sjóðsins góð. Raunávöxtun síðustu 5 ára er 4,3% að meðaltali og sé horft til síðustu 10 ára er meðaltal raunávöxtunar 4,9%.

Virkum sjóðfélögum fjölgaði um ríflega 500 frá fyrra ári og var meðalfjöldi þeirra 30.590. Lífeyrisþegum fjölgaði einnig, og var meðalfjöldi þeirra 24.244 á síðasta ári samanborið við 23.408 árið á undan. Lífeyrisgreiðslur árið 2022 voru rúmlega 83 milljarðar kr.

Þetta er meðal niðurstaðna ársreiknings LSR fyrir árið 2022, en stjórn sjóðsins undirritaði hann á fundi sínum þann 19. apríl. Þar kemur jafnframt fram að hrein raunávöxtun A-deildar LSR var -12,1%, B-deildar -15,9% og hjá Séreign var hrein raunávöxtun Leiðar I -18,3%, Leiðar II -15,6% og 0,0% hjá Leið III, sem er innlánsleið. Tryggingafræðileg staða A-deildar lækkar úr -2,7% í -5,8% milli ára.

2022-lifeyrisgreidslur

Krefjandi ár á markaði

Töluverðar lækkanir á bæði hlutabréfa- og skuldabréfamörkuðum hér heima og erlendis á árinu leiddu til þess að eignasafn LSR minnkaði um 53 milljarða kr. frá fyrra ári. Engu að síður hefur eignasafn sjóðsins vaxið hratt þegar litið er til lengri tíma og má sem dæmi nefna að frá lokum árs 2017 hefur vöxturinn verið um 467 milljarðar kr. Á því tímabili námu hreinar fjárfestingartekjur sjóðsins um 461 milljarði kr. og því hefur eignaaukningin svo til öll verið vegna fjárfestingartekna.


5-ar-avoxtun

2022-verdbrefaeignEignasafn sjóðsins í árslok skiptist þannig að eign í skuldabréfum var 565,7 milljarðar kr., eign í hlutabréfum og hlutdeildarskírteinum var 672,7 milljarðar kr. og innlán námu 53,9 milljörðum kr. Hlutfall eigna í erlendri mynt var tæplega 41% og hlutfall verðtryggðra eigna var um 34,3% af eignasafni sjóðsins í árslok 2022.


Yfirlit yfir starfsemi LSR á árinu (PDF)



A-deild

Nafnávöxtun var -3,8% á árinu 2022 sem svarar til -12,1% hreinnar raunávöxtunar. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu fimm ára var 4,3% og meðaltal síðustu tíu ára var 5,0%. Heildareignir A-deildar námu 1.021,9 milljörðum kr. í lok árs 2022.

Verðbréfaeign deildarinnar skiptist þannig í árslok 2022 að 45,2% af eignum A-deildar voru í skuldabréfum, 15,0% í innlendum hlutabréfum og sjóðum, 37,2% í erlendum hlutabréfum og sjóðum og 2,7% í innlánum. Eignir í erlendum gjaldmiðlum voru 41,4% í árslok.

Á árinu 2022 fengu að meðaltali 11.183 sjóðfélagar eða makar þeirra lífeyrisgreiðslur frá A-deild, samtals 16,5 milljarða kr. Að meðaltali greiddu 29.277 sjóðfélagar iðgjald til deildarinnar og námu iðgjöld á árinu samtals 41,9 milljörðum kr.

Ársreikningur A-deildar

B-deild

Nafnávöxtun var -7,8% á árinu 2022 sem svarar til -15,9% hreinnar raunávöxtunar. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu fimm ára var 4,0% og meðaltal síðustu tíu ára var 4,8%. Heildareignir B-deildar námu 246 milljörðum kr. í lok árs 2022.

Verðbréfaeign deildarinnar skiptist þannig í árslok 2022 að 40,0% af eignum B-deildar voru í skuldabréfum, 15,7% í innlendum hlutabréfum og sjóðum, 38,4% í erlendum hlutabréfum og sjóðum og 5,9% í innlánum. Eignir í erlendum gjaldmiðlum voru 40,8% í árslok.

Á árinu 2022 fengu að meðaltali 18.204 sjóðfélagar eða makar þeirra lífeyrisgreiðslur frá B-deild, samtals 66,3 milljarða kr. Að meðaltali greiddu 1.034 sjóðfélagar iðgjald til deildarinnar á árinu og námu iðgjöld á árinu samtals 1,4 milljörðum kr.

Áfallin skuldbinding B-deildar í árslok 2022 var 1.112 milljarðar kr. og hækkaði hún um 2,8% á árinu. Samkvæmt tryggingafræðilegri úttekt eiga ríkissjóður og aðrir launagreiðendur að standa undir 606,1 milljörðum kr. af skuldbindingum B-deildar með greiðslu lífeyrishækkana. Skuldbindingar sem deildin á sjálf að standa undir eru því 505,9 milljarðar kr. Endurmetin hrein eign sjóðsins var 245,5 milljarðar kr. í árslok samkvæmt tryggingafræðilegri úttekt. Fyrir þeim 260,4 milljörðum kr. sem upp á vantar til að fjármagna skuldbindingar sjóðsins að fullu á hann kröfu á ríkissjóð vegna bakábyrgðar.

Ársreikningur B-deildar

Séreign

Nafnávöxtun Leiðar I var -10,6% sem svarar til -18,3% hreinnar raunávöxtunar. Nafnávöxtun Leiðar II var -7,6% sem svarar til -15,6% hreinnar raunávöxtunar. Nafnávöxtun Leiðar III, sem er bundinn innlánsreikningur, var 9,4% á síðasta ári sem svarar til 0,0% hreinnar raunávöxtunar. Heildareignir Séreignar námu 25,0 milljörðum kr. í árslok 2022. Fjárfestingarleiðir Séreignar eru með mismunandi eignasamsetningu og sveiflast ávöxtun þeirra því mismikið.

Verðbréfaeign Leiðar I í árslok 2022 skiptist þannig að 36,7% voru í skuldabréfum, 9,7% í innlendum hlutabréfum og sjóðum, 51,8% í erlendum hlutabréfum og sjóðum og 1,9% í innlánum. Eignir í erlendum gjaldmiðlum voru 51,8% í árslok.

Verðbréfaeign Leiðar II í árslok 2022 skiptist þannig að 61,7% voru í skuldabréfum, 7,9% í innlendum hlutabréfum og sjóðum, 26,6% í erlendum hlutabréfum og sjóðum og 3,9% í innlánum. Eignir í erlendum gjaldmiðlum voru 26,6% í árslok.

Á árinu 2022 fengu að meðaltali 243 sjóðfélagar eða makar þeirra lífeyrisgreiðslur frá Séreign samtals að fjárhæð 736 milljónum kr. Iðgjöld námu rúmlega 1.305 milljónum kr. á árinu 2022 en að meðaltali greiddu 2.992 sjóðfélagar iðgjald til deildarinnar á árinu.

Ársreikningur Séreignar