Útsending yfirlita til sjóðfélaga

18.05.2010

Árleg útsending yfirlita stendur yfir í þessari viku. Allir greiðandi sjóðfélagar fá sent yfirlit í pósti með upplýsingum um iðgjaldagreiðslur ársins 2009. Mjög mikilvægt er að bera saman yfirlitið og launaseðla frá launagreiðanda. Vanti innborganir þá skal hafa samband við launagreiðanda eða LSR.

Nú gefst sjóðfélögum kostur á að afþakka yfirlit á pappír og sækja upplýsingar um iðgjaldagreiðslur og réttindi með rafrænum hætti á sjóðfélagavef LSR.

Með yfirlitum fylgir Fréttabréf LSR og upplýsingar um starfsemi sjóðanna á árinu 2009.

LSR vill vekja athygli á kynningarfundi fyrir sjóðfélaga þann 27. maí nk. Nánari upplýsingar um fundinn er hægt að sjá hér, en nauðsynlegt er að skrá þátttöku með því að hringja í síma 510-6100 eða senda tölvupóst á netfangið lsr@lsr.is.