Upplýsingar fyrir skattframtöl
Launamiðar
LSR hefur lokið útsendingu launamiða til allra sjóðfélaga sem fengu lífeyrisgreiðslur á árinu 2009 úr A- og B-deild LSR, LH og Séreign LSR.
Lífeyrisþegar eru hvattir til að yfirfara upplýsingar á launamiðum og hafa samband við sjóðinn ef athugasemdir finnast. Upplýsingar um lífeyrisgreiðslur koma forskráðar inn á skattaframtöl ef skilað er á netinu.
Forskráning LSR lána
Öll lán lífeyrissjóðsins eru nú forskráð á sundurliðunarblaðinu með skattframtali til hagræðingar fyrir lántakendur. Við ákvörðun á færslu LSR lána inn á skattframtölin skiptir máli hvort þau hafa verið tekin vegna íbúðarkaupa eða ekki. Það er því ekki hægt að færa þau inn að fullu fyrirfram heldur verða lántakendur að ákveða hvernig þau skuli færð inn í endanlegt framtal svo rétt sé.
Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk LSR í síma 510-6100; einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið lsr@lsr.is.
Til athugunar fyrir launagreiðendur
Allar upplýsingar um sjóði LSR eru í kafla „Launagreiðendur“ á heimasíðunni.
Upplýsingar um SAL númer og kennitölur hjá LSR:
650 B-deild dagvinna
653 B-deild vaktaálag
654 B-deild iðgjaldafríir
657 B-deild grunnskólakennarar
658 B-deild grunnskólakennarar á reglu
350 Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga dagvinna
351 Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga vaktaálag
352 Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga á reglu
651 Lífeyrissjóður alþingismanna
652 Lífeyrissjóður ráðherra
660 A-deild
670 S-deild