Lækkun á föstum vöxtum LSR lána

28.12.2009

Stjórnin Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga hafa samþykkt að fastir vextir LSR lána skuli frá og með 17. desember 2009 lækka úr 5,20% í 5,05%. Þessi samþykkt hefur ekki áhrif á vaxtakjör eldri lána sem tekin hafa verið með föstum vöxtum.