Upplýsingar fyrir skattframtöl

15.02.2012

Launamiðar

LSR hefur lokið útsendingu launamiða til allra sjóðfélaga sem fengu lífeyrisgreiðslur á árinu 2011 úr A- og B-deild LSR, LH og Séreign LSR. Lífeyrisþegar eru hvattir til að yfirfara upplýsingar á launamiðum og hafa samband við sjóðinn ef athugasemdir finnast. Upplýsingar um lífeyrisgreiðslur koma forskráðar inn á skattaframtöl ef skilað er á netinu.

Forskráning LSR lána

Öll lán lífeyrissjóðsins eru nú forskráð á sundurliðunarblaðinu með skattframtali til hagræðingar fyrir lántakendur. Við ákvörðun á færslu LSR lána inn á skattframtölin skiptir máli hvort þau hafa verið tekin vegna íbúðarkaupa eða ekki. Það er því ekki hægt að færa þau inn að fullu fyrirfram heldur verða lántakendur að ákveða hvernig þau skuli færð inn í endanlegt framtal svo rétt sé.

Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk LSR í síma 510-6100; einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið lsr@lsr.is