Ársfundur LSR og LH

18.05.2012

Ársfundur LSR og LH verður haldinn þriðjudaginn  22. maí kl. 15:00 á Hilton Reykjavík Nordica hóteli, Suðurlandsbraut 2.

Á fundinum verður gerð grein fyrir skýrslu stjórnar, ársreikningi, tryggingafræðilegri úttekt, skuldbindingum launagreiðenda og fjárfestingarstefnu.

Ársskýrsla fyrir árið 2011 verður afhent á fundinum en einnig er hægt að óska eftir heimsendingu hennar með því að senda póst á lsr@lsr.is.

Hægt er að nálgast ársskýrsluna á rafrænu formi hér á síðunni.