Vaxtabreytingar hjá LSR

03.11.2022

Frá og með 3. nóvember hækka vextir á nýjum fasteignalánum. Verðtryggðir vextir hækka um 0,1 prósentustig og óverðtryggðir vextir um 0,15 prósentustig.

Vextirnir breytast með eftirfarandi hætti:

  • Verðtryggðir fastir vextir nýrra fasteignalána hækka um 0,1 prósentustig og verða 2,7%. Verðtryggðir fastir vextir hjá LSR haldast óbreyttir út allan lánstímann.
  • Verðtryggðir breytilegir vextir nýrra fasteignalána hækka um 0,1 prósentustig og verða 2,3%. Verðtryggðir breytilegir vextir hjá LSR eru fastir til 3 ára í senn.
  • Óverðtryggðir vextir hækka um 0,15 prósentustig og verða 7,7%. Vextir óverðtryggðra sjóðfélagalána hjá LSR eru fastir í 36 mánuði í senn.

Hér má finna nánari upplýsingar um sjóðfélagalán LSR .