Vextir á óverðtryggðum lánum hækka í 6,3%

31.05.2022

Vextir óverðtryggðra lána LSR hækka úr 5,9% í 6,3% frá og með deginum í dag, þriðjudeginum 31. maí 2022. Vextir óverðtryggða sjóðfélagalána hjá LSR eru fastir í 36 mánuði í senn.

Vextir á verðtryggðum lánum breytast ekki, en þeir eru nú annars vegar 2,7% á lánum sem eru með fasta vexti út allan lánstímann og 2,2% á lánum þar sem vextir eru fastir í 36 mánuði í senn. Hér má finna nánari upplýsingar um sjóðfélagalán LSR.