Vextir óverðtryggðra lána hækka í 8,6%

30.03.2023

Vextir óverðtryggðra lána LSR hækka úr 8,2% í 8,6% frá og með föstudeginum 31. mars 2023. Vextir óverðtryggðra sjóðfélagalána hjá LSR eru fastir í 36 mánuði í senn.

Vextir á verðtryggðum lánum breytast ekki, en þeir eru nú annars vegar 2,9% á lánum sem eru með fasta vexti út allan lánstímann og 2,6% á lánum þar sem vextir eru fastir í 36 mánuði í senn. Hér má finna nánari upplýsingar um sjóðfélagalán LSR.