Yfirlitaútsendingar til sjóðfélaga í Séreign LSR
Árleg útsending yfirlita stendur yfir þessa dagana. Allir sjóðfélagar í Séreign LSR fá sent yfirlit í pósti með upplýsingum um iðgjaldagreiðslur fyrstu 6 mánuði ársins 2017. Mjög mikilvægt er að bera saman yfirlitið og launaseðlana. Vanti innborganir þá skal hafa samband við launagreiðanda eða LSR.
Sjóðfélögum gefst kostur á að afþakka yfirlit á pappír og
sækja upplýsingar um iðgjaldagreiðslur og réttindi með rafrænum hætti á
sjóðfélagavef LSR. Einfaldast er að afþakka pappír inn á sjóðfélagavefnum en
einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu sjóðsins.
Með yfirlitum í Séreign LSR fylgir upplýsingayfirlit.