Fara á efnissvæði

Stjórn LSR

Stjórn LSR er skipuð 8 stjórnarmönnum. Fjármála- og efnahagsráðherra skipar fjóra, stjórn BSRB skipar tvo, stjórn BHM skipar einn og stjórn Kennarasambands Íslands skipar einn stjórnarmann. Alls kom stjórnin 19 sinnum saman til formlegra fundarhalda á liðnu ári.

Á árinu 2025 var Magnús Þór Jónsson formaður stjórnar og Jökull Heiðdal Úlfsson varaformaður. Í ársbyrjun 2026 var Jökull hins vegar kjörinn formaður stjórnar og Unnur Berglind Friðriksdóttir tók við embætti varaformanns.

Stjórn sjóðsins er kjörin til þriggja ára í senn. Núverandi stjórn var kjörin í ársbyrjun 2024 og mun hún starfa til ársloka 2026. Stjórn LSR ber ábyrgð á að starfsemi sjóðsins sé í samræmi við gildandi lög og reglur. Eitt af verkefnum stjórnar er að móta innra eftirlit lífeyrissjóðsins og skjalfesta eftirlitsferla.

Endurskoðun ársreikninga LSR er í höndum Grant Thornton endurskoðunar en KPMG sér um innri endurskoðun sjóðsins.

Stjórn LSR 2026

Aftari röð frá vinstri: Sonja Ýr Þorbergsdóttir, Viðar Helgason (varamaður), Ólafur Hvanndal Ólafsson, Jökull Heiðdal Úlfsson, formaður stjórnar, Magnús Þór Jónsson.
Fremri röð frá vinstri: Unnur Berglind Friðriksdóttir, varaformaður stjórnar, Árni Stefán Jónsson, Ragnhildur Jónsdóttir.

Stjórn LSR

Jökull Heiðdal Úlfsson

Formaður stjórnar

Skipaður af fjármála- og efnahagsráðherra

Unnur Berglind Friðriksdóttir

Varaformaður stjórnar

Skipuð af stjórn BHM

Árni Stefán Jónsson

Skipaður af stjórn BSRB

Guðrún Ögmundsdóttir

Skipuð af fjármála- og efnahagsráðherra

Magnús Þór Jónsson

Skipaður af stjórn KÍ

Ólafur Hvanndal Ólafsson

Skipaður af fjármála- og efnahagsráðherra

Ragnhildur Jónsdóttir

Skipuð af fjármála- og efnahagsráðherra

Sonja Ýr Þorbergsdóttir

Skipuð af stjórn BSRB