Fara á efnissvæði
Séreign

Lykilstærðir Séreignar

Leið I

Nafnávöxtun

6,4%

2,5%

Hrein raunávöxtun

Hrein eign til greiðslu lífeyris

12.609

m.kr.

Hreinar fjárfestingartekjur

752

m.kr.

Meðalfjöldi virkra sjóðfélaga

1.065

103

Meðalfjöldi lífeyrisþega

48

Meðalaldur sjóðfélaga

Leið II

Nafnávöxtun

7,4%

3,4%

Hrein raunávöxtun

Hrein eign til greiðslu lífeyris

4.464

m.kr.

Hreinar fjárfestingartekjur

304

m.kr.

Meðalfjöldi virkra sjóðfélaga

657

41

Meðalfjöldi lífeyrisþega

48

Meðalaldur sjóðfélaga

Leið III

Nafnávöxtun

5,6%

1,7%

Hrein raunávöxtun

Hrein eign til greiðslu lífeyris

15.877

m.kr.

Hreinar fjárfestingartekjur

852

m.kr.

Meðalfjöldi virkra sjóðfélaga

1.131

267

Meðalfjöldi lífeyrisþega

60

Meðalaldur sjóðfélaga

Tilgreind séreign

Nafnávöxtun

6,2%

2,3%

Hrein raunávöxtun

Hrein eign til greiðslu lífeyris

600

m.kr.

Hreinar fjárfestingartekjur

32

m.kr.

Meðalfjöldi virkra sjóðfélaga

648

3

Meðalfjöldi lífeyrisþega

48

Meðalaldur sjóðfélaga

Hrein eign til greiðslu lífeyris

Séreign og Tilgreind séreign

Fjárfestingartekjur

Séreign og Tilgreind séreign

  Leið I Leið II Leið III

Tilgreind

séreign

Hlutfall eigna í erlendum gjaldmiðlum 52,8% 28,5% 0,0% 35,6%
Hlutfall verðtryggðra eigna 18,6% 37,6% 81,8% 25,3%
Iðgjöld (m.kr.) 93 265 1.100 317
Lífeyrir (m.kr.) 304 170 829 3
Rekstrarkostnaður í hlutfalli af meðalstöðu eigna 0,12% 0,12% 0,08% 0,12%

Séreign LSR skiptist í séreignardeild sem er séreignarlífeyrissjóður stofnaður 1. janúar 1999 og tilgreinda séreignardeild sem var stofnuð 1. júlí 2023 eftir að lög um lífeyrissjóði nr. 129/1997 tóku breytingum 1. janúar sama ár. Frá upphafi hefur LSR lagt áherslu á örugga vörslu séreignarsparnaðar, góða þjónustu við sjóðfélaga, góða ávöxtun og lágan rekstrarkostnað.  

Árið 2025 var síðasta árið sem fjárfestingarleiðirnar Leið I, Leið II, Leið III og Tilgreind séreign voru starfræktar, því þann 1. janúar 2026 var leiðunum fækkað úr fjórum í tvær og bera nýjar fjárfestingarleiðir heitin Verðbréfaleið og Innlánaleið. 

Við breytinguna voru verðbréfasöfn Leiðar I, Leiðar II og Tilgreindrar séreignar sameinuð í Verðbréfaleið. Leið III fékk nýtt nafn, Innlánaleið, en breyttist ekki að öðru leyti. Sjóðfélagar í séreignardeild geta ávaxtað iðgjöld sín í fyrrnefndum fjárfestingarleiðum en sjóðfélagar í tilgreindri séreignardeild geta aðeins ávaxtað iðgjöld sín í Verðbréfaleið.

Hrein eign Séreignar LSR í árslok 2025 var 33.549 m.kr. og hefur hún vaxið um 20.194 m.kr. á síðastliðnum tíu árum. Á þeim árum hafa fjárfestingartekjur numið 15.247 m.kr. og eru 75,5% af vexti eigna á tímabilinu tilkomin vegna ávöxtunar. Á árinu 2025 greiddu að meðaltali 3.386 sjóðfélagar iðgjöld til Séreignar LSR í hverjum mánuði.

Ársreikningur Séreignar 2025

Hrein eign til greiðslu lífeyris

Fjárfestingarleiðir 2025 2024
Leið I 12.609   12.084
Leið II 4.464        4.070
Leið III   15.877      14.765
Tilgreind séreign 600          254
Samtals 33.549    31.173

Fjárhæðir í milljónum kr.


Verðbréf og ávöxtun

Fjárfestingarleiðir

Frá ársbyrjun 2026 geta sjóðfélagar í séreignardeild ávaxtað iðgjöld sín í Verðbréfaleið og Innlánaleið en sjóðfélagar sem safna í Tilgreinda séreign ávaxta iðgjöld sín í Verðbréfaleið. Markmiðið með fækkun séreignarleiða úr fjórum í tvær var að einfalda séreignarþjónustuna, auka gagnsæi, halda rekstrarkostnaði í lágmarki og gera LSR kleift að skila þannig sem mestri ávöxtun beint til sjóðfélaga.

Fjárfestingarstefna Verðbréfaleiðar tekur mið af fjárfestingarstefnu A-deildar en með því næst ákveðin samlegð í rekstrinum sem eykur skilvirkni við eignastýringu og umsýslu séreignarleiðanna. Eignasafn leiðarinnar byggist á blöndu hlutabréfa og skuldabréfa þar sem tekin er skýrt skilgreind áhætta í fjárfestingum með von um hærri ávöxtun til lengri tíma. 

Í Innlánaleið eru fjármunir geymdir á verðtryggðum og óverðtryggðum innlánsreikningum sem lágmarkar áhættu og sveiflur í ávöxtun.

  Verðbréfaleið Innlánaleið
Sveifla í ávöxtun (áhætta) Mikil Lítil
Aðalfjárfesting Hlutabréf Verðtryggð innlán
Hentar best fyrir Yngra fólk og fólk á miðjum aldri sem mun ávaxta séreignina lengi í von um hærri ávöxtun og þau sem eru tilbúin til að taka meiri áhættu í fjárfestingum Sjóðfélaga sem nálgast starfslok og vilja lágmarka áhættu inneignar sinnar og þau sem vilja lágmarka áhættu
10 ára meðaltal hreinnar raunávöxtunar 3,7% 1,3%

Verðbréfaeign

Í árslok 2025 nam verðbréfaeign Séreignar LSR 33.549 m.kr. Talsverðar sveiflur voru á innlendum og erlendum verðbréfamörkuðum á árinu en allar fjárfestingarleiðir skiluðu jákvæðri raunávöxtun. Samsetningu eignasafna þeirra fjögurra leiða sem boðið var upp á í Séreign LSR á árinu 2025 má sjá í töflunni hér fyrir neðan.

Skipting eigna í Séreign og Tilgreindri séreign

Ávöxtun ársins

  Nafnávöxtun Hrein raunávöxtun
Leið I 6,4% 2,5%
Leið II 7,4% 3,4%
Leið III 5,6% 1,7%
Tilgreind séreign 6,2% 2,3%

Leið I

Nafnávöxtun Leiðar I á árinu 2025 var 6,4% og var hrein raunávöxtun ársins 2,5%. Síðustu fimm árin er meðaltal hreinnar raunávöxtunar 0,6% og 10 ára meðaltalið er 3,7%.   

Hrein raunávöxtun Leiðar I

Verðbréfaeign Leiðar I og fjárfestingarstefna

Leið II

Nafnávöxtun Leiðar II á árinu 2025 var 7,4% og var hrein raunávöxtun ársins 3,4%. Fimm ára meðaltal hreinnar raunávöxtunar er -0,3% og 10 ára meðaltal 2,5%.  

Hrein raunávöxtun Leiðar II

Verðbréfaeign Leiðar II og fjárfestingarstefna

Leið III

Nafnávöxtun Leiðar III á árinu 2025 var 5,6% og var hrein raunávöxtun ársins 1,7%. Síðustu fimm árin er meðaltal hreinnar raunávöxtunar 0,9% og 10 ára meðaltal 1,3%.  

Hrein raunávöxtun Leiðar III

Verðbréfaeign Leiðar III og fjárfestingarstefna

Tilgreind séreign

Nafnávöxtun Tilgreindar séreignar 2025 var 6,2% og var hrein raunávöxtun ársins 2,3%. Þar sem árið 2025 er annað heila starfsár leiðarinnar eru hvorki til 5 né 10 ára meðaltöl fyrir leiðina. 

Hrein raunávöxtun Tilgreindrar séreignar

Verðbréfaeign Tilgreindrar séreignar og fjárfestingarstefna


Iðgjöld og lífeyrir

Hefðbundinn séreignarsparnaður býðst til viðbótar við lögbundinn lífeyrissparnað og er sparnaðurinn persónuleg eign hvers og eins. Launþegar geta greitt á bilinu 2-4% af heildarlaunum sínum í séreignarsparnað og fá þá 2% mótframlag frá launagreiðanda og er því um beina launahækkun að ræða. Séreign LSR er með rýmri aðildarreglur en aðrar deildir sjóðsins og er í flestum tilvikum nóg að hafa einhverja tengingu við LSR eða þau aðildarfélög sem greiða til sjóðsins til að geta safnað í Séreign LSR. 

Tilgreind séreign er um margt svipuð hefðbundinni séreign, nema að því leyti að iðgjaldagreiðslur eru hluti af 15,5% skylduiðgjaldi sjóðfélaga og lækkar þá framlag í samtryggingarsjóð sem því nemur. Hægt er að verja allt að 3,5% af launum í tilgreinda séreign.

Iðgjöld og fjöldatölur

  2025 2024 Breyting
Iðgjöld í m.kr. 1.775 1.583 12,1%
Meðalfjöldi virkra sjóðfélaga 3.386 3.261 3,8%
Fjöldi með réttindi í árslok   9.022     8.490 6,3%

Séreign og Tilgreind séreign

Iðgjaldagreiðslur

Séreign og Tilgreind séreign

Meðalfjöldi virkra sjóðfélaga

Séreign og Tilgreind séreign

Hægt er að ráðstafa séreignarsparnaði við kaup eða byggingu á fyrstu fasteign eða til að auka við ráðstöfunartekjur eftir 60 ára aldur. Á árinu 2025 var einnig í gildi almenn heimild til að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán upp að ákveðnu hámarki sem rann út um áramótin. Frá 60 ára aldri getur sjóðfélagi fengið séreignarlífeyri greiddan í einu lagi eða dreift greiðslum yfir lengri tíma. Útgreiðslur úr tilgreindri séreign geta hafist frá 62 ára aldri. Við fráfall sjóðfélaga erfist séreignarsparnaður að fullu samkvæmt reglum erfðalaga.

Meðalaldur virkra sjóðfélaga í Séreign LSR var 51 ár í árslok 2025. Iðgjaldagreiðslur til Séreignar LSR vegna ársins 2025 námu 2.280 m.kr. en af þeim var 505 m.kr. ráðstafað sem greiðslu inn á úrræði vegna fasteignakaupa. Endanlegar iðgjaldagreiðslur voru því 1.775 m.kr. Meðalfjöldi virkra sjóðfélaga var 3.386 á árinu.

Útborgun séreignarlífeyris nam 1.306 m.kr. á árinu 2025 sem er aukning um 16,1% á milli ára. Alls fengu 753 sjóðfélagar greiðslur úr séreignarsjóði LSR á árinu 2025. 

Lífeyrisgreiðslur

Séreign og Tilgreind séreign

Meðalfjöldi lífeyrisþega

Séreign og Tilgreind séreign

Lífeyrisgreiðslur

  2025 2024 Breyting
Greiðslur til 60 ára og eldri 1.182 1.054 12,1%
Aðrar útgreiðslur 124 70 76,5%
Samtals 1.306 1.125 16,1%

Fjárhæðir eru í milljónum kr.

Fjöldi lífeyrisþega

  2025 2024 Breyting
Greiðslur til 60 ára og eldri 658 573 14,8%
Aðrar útgreiðslur 95 88 8,0%
Samtals 753 661 13,9%

Meðalfjárhæð árlegra lífeyrisgreiðslna

  2025 2024 Breyting
Greiðslur til 60 ára og eldri               1.796        1.840 -2,4%
Aðrar útgreiðslur                  1.306           799 63,5%
Samtals               1.737        1.702 1,9%

Fjárhæðir eru í þúsundum kr.