Ábyrgar fjárfestingar
LSR tileinkar sér ábyrga starfshætti, með vönduð vinnubrögð, fagmennsku og frumkvæði að leiðarljósi. Áhersla er lögð á að fjárfestingar sjóðsins séu í samræmi við langtímahagsmuni hans, sjóðfélaga og samfélagsins í heild með því að huga að sjálfbærni í rekstri félaga og ábyrgri nýtingu auðlinda. Verklagi sjóðsins við fjárfestingar má skipta upp í þrjá meginflokka: stýringu eignasafns, virkt eignarhald og upplýsingagjöf.
Stýring eignasafns
Mat á sjálfbærniáhættu
Óháð sjálfbærnimat frá þriðja aðila
Fylgni við lög og reglur
Alþjóðlegir staðlar og mælikvarðar
Samþætting UFS-þátta í fjárfestingarferli
Virkt eignarhald
Mæting á hluthafaviðburði, uppgjörsfundi, kynningar og hluthafafundi
Uppbyggilegt samtal: Framvirkt og/eða viðbragð
Eftirfylgni með þróun sjálfbærnimála og mæling á árangri
Áhættustýring
Upplýsingagjöf
Upplýsingagjöf um ráðstöfun atkvæða á hluthafafundum
Reglubundin og stöðluð skýrslugjöf
Skýrt og aðgengilegt birtingarform lykilupplýsinga á heimasíðu
Aðild og virk þátttaka í viðeigandi samtökum
Sjálfbærnistefna sjóðsins lýsir megináherslum er varða sjálfbærni og hvernig þær áherslur eru innleiddar í starfsemi sjóðsins með það að markmiði að stuðla að jafnvægi milli hagvaxtar, umhverfis, félagslegrar velferðar og ábyrgra stjórnarhátta. Nálgunin byggir meðal annars á greiningu á sjálfbærniáhættu sem kann að hafa áhrif vegna reksturs félaga, orðspors og langtímaafkomu þeirra félaga sem sjóðurinn fjárfestir í.
Sjálfbærniáhætta
Umhverfisleg áhætta
Sú áhætta sem tengist bæði áhrifum starfsemi á umhverfið og áhrifum umhverfisins á starfsemi fyrirtækja, svo sem vegna losunar, loftslagsbreytinga, náttúruhamfara, ósjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda eða breytinga á regluverki.
Félagsleg áhætta
Sú áhætta sem felst í áhrifum starfsemi á hagsmunaaðila, þar á meðal starfsfólk, viðskiptavini og samfélag, sem stafar af ófullnægjandi aðgæslu um hag starfsfólks og samfélags. Þetta getur t.d. verið vegna brota á mannréttindum, óviðunandi vinnuaðstæðna, skorts á öryggi eða annarra þátta sem hafa neikvæð áhrif á velferð og réttindi.
Áhætta tengd stjórnarháttum
Sú áhætta sem stafar af veikleikum í stjórnarháttum fyrirtækja, þar á meðal skorti á gagnsæi, ábyrgðarskyldu og viðeigandi siðferðislegum viðmiðum við stjórnun og ákvarðanatöku, sem getur haft neikvæð áhrif á rekstur, orðspor, áhættusnið og langtímavirði.
Með mati á sjálfbærniáhættu getur sjóðurinn greint og metið langtímaáhættu sem kann að hafa veruleg áhrif á virði fjárfestinga, borið saman ólíka fjárfestingarkosti, greint tækifæri til úrbóta og metið hvort fjárfestingar samræmist markmiðum sjóðsins. Átök, pólitísk spenna, breytingar á regluverki og rask á alþjóðlegum aðfangakeðjum geta haft veruleg áhrif á rekstrarumhverfi fyrirtækja og þar með á áhættu og ávöxtun fjárfestinga. Með markvissri áherslu á sjálfbærni leitast sjóðurinn við að bregðast við slíkum áskorunum eftir bestu getu, draga úr áhættuþáttum og styðja við langtímaárangur af fjárfestingastarfsemi sjóðsins.
Ábyrg starfsemi
LSR leggur áherslu á jafnrétti í starfsemi sinni og setur heilbrigt og öruggt starfsumhverfi í forgang. Hjá sjóðnum er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi, bæði hvað varðar starfsumhverfi og starfsanda, auk þess að samhugur, samstarf og gagnkvæm virðing ríki milli starfsfólks. Mannréttindi eru grundvallarréttindi og er áhersla lögð á að allt starfsfólk LSR sé metið að verðleikum og njóti jafnra tækifæra. Mannauðsstefnu sjóðsins er m.a. ætlað að vera hvatning jafnt fyrir starfsfólk og stjórnendur til þess að skapa faglegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi.
Í rekstri sjóðsins er lögð áhersla á ábyrgð og gagnsæi, þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi í ákvarðanatöku og daglegu starfi. Það felur í sér að tekið er mið af sjálfbærni með það að markmiði að stuðla að langtímaverðmætasköpun og jákvæðum áhrifum á samfélagið. LSR leitast við að vera fyrirmynd í ábyrgum rekstri með því að samþætta sjálfbærni í starfsemi sjóðsins, bæði hvað varðar innri ferla sem og vegna viðskipta við birgja og þjónustuaðila sjóðsins.