Séreign LSR

Eignastýring LSR sér um ávöxtun eigna samhliða öðrum eignum LSR, stærsta lífeyrissjóðs landsins. Varfærni og reynsla einkennir eignastýringu fjárfestingarleiða Séreignar LSR.

Kostir Séreignar LSR

  • Góð langtímaávöxtun.
  • Persónuleg þjónusta og eftirfylgni.
  • Enginn upphafskostnaður eða hlutfall af iðgjöldum fer í kostnað.
  • Enginn kostnaður er af flutningi á milli fjárfestingarleiða.
  • Engin sölulaun.
  • Lágur rekstrarkostnaður.

Harpa

Af hverju séreignarsparnaður?

Séreignarsparnaður er bein launahækkun fyrir þig þar sem launagreiðanda ber að greiða kjarasamningsbundið mótframlag við framlag þitt í séreignarsjóð. Framlög berast í formi iðgjalda sem eru allt að 4% af heildarlaunum.

Vegna ákvæða laga um frestun skattlagningar þá er þér heimilt að greiða allt að 4% af heildarlaunum þínum sem iðgjald í séreignarsjóð til viðbótar við skyldubundið 4% iðgjald í lífeyrissjóð.

Þú átt rétt á kjarasamningsbundnu mótframlagi frá launagreiðanda. Kostir séreignarsparnaðar eru því ótvíræðir:

  • Skattalegt hagræði myndast þar sem iðgjald er ekki skattlagt við innborgun.
  • Fjármagnstekjuskattur er ekki greiddur.
  • Ráðstöfun séreignar inn á lán eða til íbúðakaupa.
  • Séreign skerðir hvorki barna- né vaxtabætur.
  • Sparnaðurinn er séreign sem erfist.
  • Úttekt getur hafist við 60 ára aldur og útborgunarreglur eru sveigjanlegar.
  • Þægilegt sparnaðarform þar sem launagreiðandi sér um að greiða sparnaðinn til séreignarsjóðs.
  • Meira ráðstöfunarfé á eftirlaunaárum.

Mótframlag launagreiðanda, ásamt skattfrestun við innborgun gerir það að verkum að enginn annar sparnaður stenst samanburð við séreignarsparnað.