Umframgreiðslur og uppgreiðslur lána
Hægt er að greiða inn á lán eða greiða lán upp að fullu hvenær sem er. Einfaldast og fljótlegast er að afgreiða umfram- eða uppgreiðslur á Mínum síðum.
Uppgreiðslugjald frá 15. júní 2026
Frá 15. júní 2026 munu ný fasteignalán bera uppgreiðslugjald fyrstu 5 ár lánstímans. Uppgreiðslugjaldið er aldrei hærra en 0,2% af fjárhæð umframgreiðslu fyrir hvert heilt ár sem eftir er af lánstímanum en verður þó aldrei hærra en sem nemur 1% af umframgreiðslunni.
Umframgreiðslur upp að 1.000.000 kr. innan hvers árs eru jafnframt undanskildar uppgreiðslugjaldi.
- Dæmi: Ef greiddar eru 100.000 kr. á mánuði í umframgreiðslur, samtals 1.200.000 kr. á almanaksári, er einungis greitt uppgreiðslugjald af 200.000 kr.
- Dæmi: Ef greiddar eru 10.000.000 kr. í einni umframgreiðslu reiknast uppgreiðslugjald af 9.000.000 kr.
Ekki þarf að greiða uppgreiðslugjald í eftirfarandi tilvikum:
- Ef vextir á nýjum sambærilegum lánum sem sjóðurinn býður upp á eru jafnháir eða hærri en vextirnir á láninu sem greitt er inn á.
Dæmi: Ef sjóðfélagi er með lán á 4,5% vöxtum en sambærileg ný sjóðfélagalán LSR eru með 4,7% vexti þarf ekki að greiða uppgreiðslugjald þar sem vextir á nýjum lánum eru hærri. - Við ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán
- Ef innan við eitt ár er eftir af lánstímanum
- Ef meira en 5 ár eru liðin frá lánveitingu
- Ef lánið var tekið fyrir 15. júní 2026
Framkvæmd umfram- eða uppgreiðslna
Til að greiða aukalega inn á lán, þ.e. umfram það sem greitt er af láninu að jafnaði, er stofnuð umframgreiðslukrafa á Mínum síðum. Þar má einnig útbúa umframgreiðslusamning til að greiða aukalega inn á lán með fleiri en einni greiðslu.
Innan klukkustundar frá stofnun umframgreiðslukröfu mun krafa birtast í heimabanka. Eftir að krafan hefur verið greidd birtist greiðslan í greiðslusögu lánsins á Mínum síðum degi síðar. Krafan er valkvæð og fellur niður 3 dögum eftir gjalddaga ef hún er ekki greidd.
Til að umframgreiðsla nýtist til að lækka höfuðstól lánsins þarf hefðbundin afborgun að vera greidd áður en umframgreiðsla er stofnuð. Ef það er ekki gert fer umframgreiðslan í að borga ógreiddan gjalddaga fyrst ásamt áföllnum vöxtum í stað þess að lækka höfuðstólinn.
Uppgreiðsla láns fer fram með sama hætti, en þá er stofnuð uppgreiðslukrafa. Uppgreiðsluverðmætið er sótt sjálfkrafa og krafa birtist í heimabanka innan klukkustundar.
Ekki á að greiða hefðbundna afborgun samhliða því að uppgreiðslukrafa er stofnuð þar sem afborgunin er hluti af uppgreiðslukröfunni sem stofnast.
Kröfu vegna uppgreiðslu láns að fjárhæð kr. 10 milljónum eða meira þarf að greiða samdægurs fyrir kl. 16:00 en fyrir kl. 20:30 vegna lægri upphæða.
Umfram-/uppgreiðslur sjást í greiðslusögu lánsins á Mínum síðum daginn eftir að greiðsla er innt af hendi. Ef umframgreiðsla/uppgreiðsla er framkvæmd um helgi berst greiðslan inn á lán næsta virka dag á eftir.