Makalífeyrir við fráfall sjóðfélaga
Við fráfall sjóðfélaga í A-deild LSR á eftirlifandi maki eða sambúðaraðili rétt á makalífeyri í 5 ár. Þetta tímabil lengist ef makalífeyrisþegi hefur börn sín og hins látna á framfæri. Í þeim tilfellum er makalífeyrir greiddur þar til yngsta barn nær 22 ára aldri. Ef eftirlifandi maki er með a.m.k. 50% örorku er greiddur fullur makalífeyrir meðan sú örorka varir, en ekki lengur en til 67 ára aldurs.
Fjárhæð makalífeyris er hlutfall af áunnum réttindum hins látna eins og þau eru við 65 ára aldur. Ávinningur af frestun eftirlaunatöku fram yfir 65 ára aldur reiknast ekki inn í makalífeyri. Maki gæti átt rétt á framreikningi, en þá eru réttindi hins látna sjóðfélaga reiknuð eins og hann hefði greitt iðgjöld til 65 ára aldurs. Nánar er fjallað um framreikning í umfjöllun um örorkulífeyri.
Réttur til makalífeyris fellur niður, ef makinn gengur í hjónaband á ný eða stofnar til sambúðar sem jafna má til hjúskapar. Ef síðara hjónabandi er slitið án réttar til lífeyris gengur réttur til makalífeyris aftur í gildi.
Makalífeyrir í A-deild:
- Greiðist í 5 ár frá andláti sjóðfélaga
- Fullur makalífeyrir: 50% af áunnum réttindum sjóðfélaga fyrstu 3 árin
- Hálfur makalífeyrir: 25% af áunnum réttindum sjóðfélaga næstu 2 árin
- Ef börn hins látna eru á framfæri eftirlifandi maka greiðist fullur makalífeyrir þar til yngsta barn nær 22 ára aldri