Fara á efnissvæði
Innskrá
Ávinnsla réttinda

Þú greiðir 4% af launum og launagreiðandi 8%, en ekki er greitt iðgjald af yfirvinnu eða aukavöktum. Þegar 32 eða 95 ára reglu er náð hættir þú að greiða iðgjald og launagreiðandi greiðir 12% að fullu.

Nánar um ávinnslu
Lífeyrisgreiðslur

Hægt er að hefja töku eftirlauna úr B-deild við 65 ára aldur en ef þú nærð 95 ára reglu geturðu hafið töku lífeyris allt niður í 60 ára. Velja þarf hvort eftirlaunagreiðslur fylgi launabreytingum eftirmanns  eða launavísitölu opinberra starfsmanna. 

Nánar um greiðslur
Skipting milli hjóna

Tveir meginkostir eru í boði fyrir hjón sem vilja skipta með sér lífeyrisréttindum eða greiðslum. Í sumum tilvikum þarf að sækja um skiptingu fyrir 65 ára aldur.

Yfirlit

Hvenær má hefja töku eftirlauna í B-deild?

Almennt er miðað við að eftirlaunatöku í B-deild megi hefja við 65 ára aldur. Ef þú hefur hins vegar greitt iðgjöld í sjóðinn samtals í 32 ár fyrir þann aldur er mögulegt að þú eigir kost á að velja 95 ára reglu. 

Ef svo er getur taka eftirlauna hafist þegar samanlagður lífaldur og iðgjaldagreiðslutími nær 95 árum, þó aldrei fyrr en 60 ára.

Í þessum tilvikum þarftu að velja milli 32 ára eða 95 ára reglu. Hvor um sig hefur ákveðna eiginleika sem gott er að hafa í huga til að meta hvað hentar þér. 

Eftirlaunataka úr B-deild LSR er háð því skilyrði að sjóðfélagi sé ekki í starfi hjá ríkisstofnun eða sveitarfélagi í 50-100% starfshlutfalli. Sú regla gildir sama hvort sjóðfélagi greiðir iðgjöld af því starfi í  B-deild eða í A-deild.

Tvær ólíkar reglur

  • 32 ára reglan: Þegar greitt hefur verið í B-deild í samtals 32 ár
  • 95 ára reglan: Þegar samanlagður lífaldur og iðgjaldagreiðslutími í B-deild nær 95 árum

Algengar spurningar um B-deild

  • Á Mínum síðum getur þú séð í hvaða deild lífeyrisréttindi þín eru.

  • Á Mínum síðum getur þú séð hversu mikil réttindi þú átt í dag miðað við upphaf töku lífeyris 65 ára. Í B-deild safnar þú prósenturéttindum og er fjárhæð eftirlauna reiknuð sem hlutfall af viðmiðunarlaunum. 

  • Almennur eftirlaunaaldur í B-deild er við 65 ára aldur. Undantekning er ef 95 ára regla næst fyrir þann tíma en þá er möguleiki að hefja töku eftirlauna fyrr, þó aldrei fyrr en við 60 ára aldur. Eftirlaunataka úr B-deild er háð því skilyrði að ekki megi vera lengur í föstu starfi hjá ríkisstofnun eða sveitarfélagi sem hefur aðild að B-deildinni og starfshlutfall þarf að vera undir 50%.

  • Já, ef starfshlutfall samhliða eftirlaunatöku úr B-deild er 49,9% eða lægra. Skilyrði er að sjóðfélagi sé ekki lengur í föstu starfi hjá ríkisstofnun eða sveitarfélagi í 50-100% starfshlutfalli, sama hvort iðgjöld af starfinu séu greidd í A- eða B-deild.

  • Sótt er um eftirlaun á Mínum síðum og er vinnslutími eftirlaunaumsóknar 4-6 vikur. Hér má finna leiðbeiningar um ferlið skref fyrir skref.

  • Mögulegt er að skipta eftirlaunaréttindum eða eftirlaunagreiðslum á milli maka til að jafna stöðu sambúðaraðila. Hér má finna nánari upplýsingar um skiptingu milli maka. Þar sem makalífeyrisréttur B-deildar er mjög sterkur mælir sjóðurinn oft gegn því að réttindaskipting hjóna sé framkvæmd ef annar eða báðir aðilar greiða í B-deildina.

  • Við fráfall sjóðfélaga B-deildar getur maki átt rétt á makalífeyri. Réttur til makalífeyris myndast einungis meðan á hjúskap stendur. Fjárhæð makalífeyris er hlutfall af réttindum sjóðfélaga og greiðist til eftirlifandi maka til æviloka.

    Við fráfall, eftirlaun eða örorku sjóðfélaga geta börn sjóðfélaga átt rétt á barnalífeyri til 18 ára aldurs. Barnalífeyrir er greiddur sem föst mánaðarleg upphæð til framfæranda við örorku og eftirlaun en til barns vegna andláts.

  • Á Mínum síðum undir flipanum Mínar upplýsingar er hægt að breyta bankareikningi, skattþrepi og skráningu skattkorts.

  • Þær segja í meginatriðum til um tvennt, þ.e. hvenær hægt er að hefja eftirlaunatöku og hvenær sjóðfélagi verður iðgjaldafrír. Að auki eru reglur um ávinnslu réttinda fyrir og eftir að reglu er náð örlítið mismunandi. Hámarksréttindaávinnsla þegar reglu er náð er 64%.

    Hér má finna nánari upplýsingar um 32 ára og 95 ára reglurnar.

  • Eftirlaunagreiðslur úr B-deild hækka í takt við launaþróun. Þessar hækkanir geta miðast við tvær mismunandi reglur. Annars vegar meðaltalsreglu en þá fylgja eftirlaunin vísitölu launa opinberra starfsmanna og hins vegar eftirmannsreglu en þá fylgja eftirlaunin kjarasamningshækkunum og launaþróun eftirmanns í starfi.

    Almenna reglan er að eftirlaunin fylgi meðaltalsreglu en ef sjóðfélagi greiðir iðgjöld í B-deild fram að töku eftirlauna hefur hann kost á að velja milli þessara tveggja reglna. Hér má finna nánari upplýsingar um reglurnar og samanburð á launaþróun milli þeirra.

  • Örorkulífeyrir úr B-deild aðstoðar við að bæta upp tekjutap ef þú þarft að minnka við þig vinnu eða láta af störfum vegna sjúkdóms eða slyss. Réttur getur verið á örorkulífeyri ef starfsgeta skerðist um 10–100% í 3 mánuði eða lengur.

  • Eftirlaunaþegar með lögheimili erlendis verða árlega að staðfesta að þeir séu á lífi til að viðhalda rétti á eftirlaunagreiðslum. Nægir þá að skrá sig inn á Mínar síður í byrjun hvers árs því til staðfestingar.

    Lífeyrisþegar með makalífeyrisgreiðslur verða, ásamt því að staðfesta árlega að þeir séu á lífi, að skila inn staðfestingu á núverandi hjúskaparstöðu frá búsetulandi til að viðhalda rétti á makalífeyri.

    Örorkulífeyrisþegar verða að senda árlega afrit af síðasta skattframtali búsetulands.

    Hér má finna nánari upplýsingar um búsetu erlendis.

  • Lífeyrir úr B-deild er greiddur út fyrsta hvers mánaðar.