Sjálfbærniáhætta
Sjálfbærniáhætta eru þeir áhættuþættir sem geta haft neikvæð áhrif á starfsemi, þ.e. að umhverfislegir þættir, félagslegir þættir og stjórnarhættir geti haft neikvæð áhrif í för með sér á starfsemi, fjárhagslega stöðu og langtíma lífvænleika fyrirtækis, fjárfestingar eða verkefnis. Því leggur LSR áherslu á að greina fjárfestingu út frá umhverfislegum þáttum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum ásamt þeim áhættuþáttum sem liggja þar undir út frá eðli fjárfestingar.
Í samræmi við auknar kröfur um stefnu vegna sjálfbærniáhættu í fjárfestingum er mikilvægt að geta fylgst með, mælt og metið áhrif fjárfestinga á sjálfbærniþætti. Þetta felur í sér að við skoðun á fjárfestingakostum eru UFS-þættir metnir út frá fjárhagslegri áhættu. Áhætta tengd sjálfbærni er höfð til hliðsjónar eftir því sem við á í fjárfestingarákvörðunarferlinu ásamt hefðbundinni fjárfestingaráhættu.
Með því að samþætta UFS-þætti í fjárfestingarákvarðanir eykst ekki aðeins innsýn í langtímaáhættu sjóðsins heldur skapast tækifæri til að styðja við sjálfbæra þróun og auka verðmætasköpun. LSR leggur ríka áherslu á reglubundið eftirlit með áhættuþáttum og ítarlegar greiningar til að meta áhrif þeirra á eignasafnið. Með þessu móti leitast sjóðurinn við að vernda hagsmuni sjóðfélaga, styðja við stöðugleika á fjármálamörkuðum og stuðla að ábyrgri fjárfestingu sem skilar ávöxtun til lengri tíma litið og tryggir um leið að grundvallarhlutverki sjóðsins sé sinnt.
Umhverfisleg áhætta
Sú áhætta sem tengist bæði áhrifum starfsemi á umhverfið og áhrifum umhverfisins á starfsemi fyrirtækja, svo sem vegna losunar, loftslagsbreytinga, náttúruhamfara, ósjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda eða breytinga á regluverki.
Félagsleg áhætta
Sú áhætta sem felst í áhrifum starfsemi á hagsmunaaðila, þar á meðal starfsfólk, viðskiptavini og samfélag, sem stafar af ófullnægjandi aðgæslu um hag starfsfólks og samfélags. Þetta getur t.d. verið vegna brota á mannréttindum, óviðunandi vinnuaðstæðna, skorts á öryggi eða annarra þátta sem hafa neikvæð áhrif á velferð og réttindi.
Áhætta tengd stjórnarháttum
Sú áhætta sem stafar af veikleikum í stjórnarháttum fyrirtækja, þar á meðal skorti á gagnsæi, ábyrgðarskyldu og viðeigandi siðferðislegum viðmiðum við stjórnun og ákvarðanatöku, sem getur haft neikvæð áhrif á rekstur, orðspor, áhættusnið og langtímavirði.
Sjálfbærniáhætta – hlutabréfasafn LSR
Stór hluti hlutabréfasafns sjóðsins er lítið útsettur fyrir sjálfbærniáhættu en hversu útsett félög eru fyrir sjálfbærniáhættu ræðst af þeirri atvinnugrein sem þau tilheyra. Rúmlega 13% eigna teljast miðlungs útsettar fyrir sjálfbærniáhættu og falla þar undir m.a. fyrirtæki í rafeinda- og örgjörvaframleiðslu og heildsölu. Þá eru rúmlega 3% eigna mikið útsettar, þar sem byggingaiðnaður og námuiðnaður vega þyngst. Sjálfbærniáhætta var greind fyrir nær allt hlutabréfasafnið, eða 99,8% þess. Nánar er fjallað um sjálfbærniáhættu í sjálfbærniskýrslu sjóðsins.