Fara á efnissvæði
Innskrá

Innlendar fjárfestingar – UFS-mat

Sjálfbærnimat LSR veitir innsýn í umhverfislega þætti, félagslega þætti og stjórnarhætti innan fjárfestinga sjóðsins til að stuðla að upplýstri ákvarðanatöku með langtíma ávöxtun og ábyrga áhættustýringu að leiðarljósi. LSR framkvæmir greiningu á sjálfbærniþáttum þeirra fjármálagerninga sem fjárfest er í með því að kalla eftir svörum frá mótaðilum, meðal annars með áreiðanleikakönnun og út frá úrvinnslu gagna við greiningu. Einnig er stuðst við UFS-mat frá þriðja aðila. UFS-mat frá þriðja aðila byggir bæði á opinberum upplýsingum og fundum með forsvarsmönnum félaga.

LSR telur mikilvægt að eiga uppbyggileg samtöl við þau félög sem fjárfest er í með það í huga að stuðla að jákvæðri þróun í sjálfbærnimálum. Reglulega er staða sjálfbærnimála þeirra fjármálagerninga sem fjárfest hefur verið í yfirfarin og þróun UFS-þátta fylgt eftir.

 

Innlent skráð eignasafn – einkunnir

UFS-einkunn félaga í innlendu eignasafni LSR byggir á UFS-mati frá Reitun hf. sem byggir mat sitt bæði á opinberum upplýsingum og fundum með forsvarsmönnum félaga. Félögum eru gefin stig fyrir umhverfismál, félagsleg mál og stjórnarhætti á skalanum 0 til 100, þar sem 100 er hæsta einkunn.

Einkunnaskali

Félögum í eignasafni er gefin einkunn frá A1-D, þar sem A1 er hæsta mögulega einkunn og D sú lægsta. 

A1-A3

Framúrskarandi

B1-B3

Gott

C1-C3

Miðlungs

D

Slakt

UFS-Einkunn Neðri mörk Efri mörk

A1

97 100

A2

92 96

A3

Arion banki hf., Kvika banki hf., Landsbankinn hf., Orkuveita Reykjavíkur

86 91

B1

Festi hf., Heimar hf., Íslandsbanki hf., JBT Marel hf., Sjóvá-Almennar tryggingar hf., Skagi hf., Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.

80 85

B2

Alvotech S.A., Bláa lónið, Brim hf., Búseti húsnæðissamvinnufélag, Eimskipafélag Íslands hf., Embla Medical, Hagar hf., Hampiðjan hf., HS orka hf., Íslandshótel hf., Landsnet hf., Lánasjóður sveitarfélaga ohf., Rarik ohf., Reitir fasteignafélag hf., Sýn hf.

70 79

B3

Félagsbústaðir hf., HS Veitur hf., Icelandair Group hf., Ísfélag hf., Kaldalón hf., Síldarvinnslan hf., Síminn hf.

60 69

C1

Alma íbúðafélag hf., Iceland Seafood International hf., Nova klúbburinn hf.

50 59

C2

40 49

C3

30 39

D

0 29

Sundurliðun stiga í UFS-þætti

Sé einkunnagjöf í innlendu eignasafni LSR dregin saman má sjá að heildareinkunn safnsins er 80 af 100 mögulegum. Mismunandi er hversu mikið umhverfisþættir, félagsþættir og stjórnarhættir vega hjá hverju og einu undirliggjandi félagi. Í töflunni hér fyrir neðan má sjá sundurliðun einkunnar niður í umhverfisþætti, félagsþætti og stjórnarhætti.

80/100

Umhverfisþættir

81/100

Félagsþættir

78/100

Stjórnarhættir

80/100

Heild

0

Mikil áhætta

80

100

Lítil áhætta