Sjálfbærniáhætta
Sjálfbærniáhætta eru þeir áhættuþættir sem geta haft neikvæð áhrif á starfsemi, þ.e. að umhverfislegir þættir, félagslegir þættir og stjórnarhættir geti haft neikvæð áhrif í för með sér á starfsemi, fjárhagslega stöðu og langtíma lífvænleika fyrirtækis, fjárfestingar eða verkefnis. Því leggur LSR áherslu á að greina fjárfestingu út frá umhverfislegum þáttum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum ásamt þeim áhættuþáttum sem liggja þar undir út frá eðli fjárfestingar.
Í samræmi við auknar kröfur um stefnu vegna sjálfbærniáhættu í fjárfestingum er mikilvægt að geta fylgst með, mælt og metið áhrif fjárfestinga á sjálfbærniþætti. Þetta felur í sér að við skoðun á fjárfestingakostum eru UFS-þættir metnir út frá fjárhagslegri áhættu. Áhætta tengd sjálfbærni er höfð til hliðsjónar eftir því sem við á í fjárfestingarákvörðunarferlinu ásamt hefðbundinni fjárfestingaráhættu.
Með því að samþætta UFS-þætti í fjárfestingarákvarðanir eykst ekki aðeins innsýn í langtímaáhættu sjóðsins heldur skapast tækifæri til að styðja við sjálfbæra þróun og auka verðmætasköpun. LSR leggur ríka áherslu á reglubundið eftirlit með áhættuþáttum og ítarlegar greiningar til að meta áhrif þeirra á eignasafnið. Með þessu móti leitast sjóðurinn við að vernda hagsmuni sjóðfélaga, styðja við stöðugleika á fjármálamörkuðum og stuðla að ábyrgri fjárfestingu sem skilar ávöxtun til lengri tíma litið og tryggir um leið að grundvallarhlutverki sjóðsins sé sinnt.
Áhættuflokkar
- Umhverfisáhætta: Auðlindaskortur, mengun, tap á líffræðilegum fjölbreytileika
- Félagsleg áhætta: Mannréttindi, vinnuaðstæður, heilsa og öryggi
- Stjórnaráhætta: Spilling og mútur, óheiðarleg viðskipti, skortur á gagnsæi
SFDR-flokkun
SFDR-reglugerðinni (Sustainable Finance Disclosure Regulation) er ætlað að tryggja samræmdar upplýsingar um hvernig aðilar á fjármálamarkaði meta áhættu tengda sjálfbærni og hvernig taka eigi tillit til helstu neikvæðra áhrifa sjálfbærniþátta við fjárfestingarákvarðanir. Markmið reglugerðarinnar er að auka gagnsæi fyrir fjárfesta og samræma upplýsingagjöf.
Yfirlýsing LSR varðandi neikvæð áhrif fjárfestingarákvarðana á sjálfbærniþætti
Fjárfestingar í sjóðum skal flokka í eftirfarandi þrjá flokka (article 6, 8 og 9) eftir áherslu á sjálfbærni:
Grein 9
Sjóðir sem hafa sjálfbær fjárfestingarmarkmið að leiðarljósi
Grein 8
Sjóðir sem fjárfesta í umhverfis- og samfélagshvetjandi fjármálagerningum
Grein 6
Sjóðir sem samþætta enga sjálfbærni inn í fjárfestingarferli