Afgreiðsla og símaþjónusta lokuð 24. október vegna Kvennaverkfalls
22. október 2025
Afgreiðsla og símaþjónusta verða lokuð föstudaginn 24. október vegna Kvennaverkfalls. LSR stendur heilshugar með konum og kvárum og hvetur alla til að leggja sitt af mörkum til að efla jafnrétti í þjóðfélaginu og standa saman gegn mismunun.
Ríflega þrír af hverjum fjórum sem starfa hjá sjóðnum eru konur og það er til marks um mikilvægi þeirra fyrir starfsemina að án þeirra sér sjóðurinn ekki fram á að hægt verði að sinna beinni þjónustu við sjóðfélaga. Því hvetjum við sjóðfélaga til að nýta sér rafrænar lausnir sjóðsins á Mínum síðum þann 24. október eða hafa samband með skilaboðum sem verður svarað eftir helgi.
LSR leggur mikla áherslu á jafnrétti kynjanna í sinni starfsemi. Sjóðurinn hefur sett sér jafnlaunastefnu og jafnréttisáætlun, verið með jafnlaunavottun frá árinu 2021 og hlaut fyrir skömmu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar í sjötta sinn.
Sjóðurinn hvetur allar konur og kvár til að taka þátt í skiplegri dagskrá í tilefni Kvennaverkfallsins og karlmenn til að sýna baráttunni stuðning og standa vaktina bæði í vinnu og á heimili.