Fara á efnissvæði
Innskrá

Frábær staðsetning

Skrifstofa sjóðsins er þægilega staðsett að Engjateigi 11 í jaðri Laugardalsins. Aðgengi er gott, bæði hvað varðar bílastæði og almenningssamgöngur, auk þess sem boðið er upp á góða hjóla- og sturtuaðstöðu. Þá býðst starfsfólki að vinna hluta vinnutíma í fjarvinnu. Sjóðurinn rekur mötuneyti á staðnum sem nýtur mikilla vinsælda meðal starfsfólks.

LSR hvetur starfsfólk til að tileinka sér heilbrigt líferni og nýta vistvæna samgöngumáta til að ferðast til og frá vinnustað. Því býður sjóðurinn upp á árlegan líkamsræktarstyrk og samgöngustyrk fyrir þá sem nota vistvæna ferðamáta við að komast til og frá vinnu. 

Engjateigur2

Öflugt félagslíf

Starfsfólk LSR rekur starfsmannafélag sem heldur reglulega viðburði allt árið um kring. Meðal reglulegra viðburða eru árshátíð, jólahlaðborð, vorhátíð, haustferð, jólaball fyrir börn starfsfólks og margt fleira.

Haustferd

Jöfn tækifæri og framþróun í starfi

LSR leggur áherslu á jafnrétti í starfsemi sinni og vinnur eftir jafnlaunastefnu. Sjóðurinn er jafnframt með jafnlaunavottun.

LSR vinnur eftir fræðslustefnu sem segir til um að starfsfólk skuli eiga kost á fræðslu og þjálfun sem eykur færni og ánægu í starfi. Þannig stuðli sjóðurinn að því að starfsfólk geti nýtt hæfileika sína til fulls hverju sinni.

Content

Ánægt starfsfólk er lykillinn að góðu starfi

Niðurstöður reglulegra starfsánægjukannana sýna að LSR er fyrirmyndarvinnustaður. Vilt þú slást í hópinn? Fylgstu með síðu sjóðsins á Alfred.is, þar sem lausar stöður eru birtar.

Nú er ein staða laus til umsóknar hjá sjóðnum, staða mannauðsstjóra. Hér má finna nánari upplýsingar um hana