Sjóðnum er skylt samkvæmt lögum að framkvæma slíka áreiðanleikakönnun meðal lántaka sjóðsins með reglubundnum hætti. Spurt er um:
- Stöðu á vinnumarkaði
- Raunverulegan eiganda fjármuna sem notaðir eru við greiðslu lánsins
- Uppruna fjármuna sem notaðir eru við greiðsluna
- Hvort lántaki eða nátengdir aðilar séu í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla
Könnunin birtist einungis hjá þeim sjóðfélögum LSR sem eru með fasteignalán og gerist það við innskráningu á Mínar síður. Nauðsynlegt er að svara könnuninni áður en lengra er haldið. Eftir að könnuninni hefur verið svarað líða tvö ár þar hún er lögð fyrir aftur.